Vikings Trec keppni

12.02.2016

Fimmtudagurinn 18 febrúar verður hrikalega spennandi í Víkings Treck keppni í Gluggar og Gler deildinni.

Í fyrsta skipti í sögunni verður haldin keppni innandyra í Treck á Íslandi sem hluti af keppnisröð. Treck er mjög spennandi keppnisgrein sem nýtur mikilla vinsælda erlendis. Treck reynir á samspil hests og knapa þar sem parið leysir ýmsar þrautir í fyrirfram ákveðinni braut. Ekki er keppt á tíma en þó eru reglurnar þannig að hvert par má ekki vera lengur en 5 mínútur að klára þrautirnar níu og að auki verður hver þraut að leysast innan 40 sekúnda. Spennan getur því verið mikil enda er mikið í húfi því fjölmörg stig eru í pottinum í einstaklings- og liðakeppninni.

Æfingar hafa verið strangar hjá liðunum enda alltaf viss spenna sem fylgir því að keppa í nýrri grein. Að venju keppa þrír knapar fyrir hvert lið þ.e. 45 knapar fyrir 15 lið.

Á fimmtudaginn opnar húsið kl. 18:00 og sjálf keppnin hefst kl. 19:00.

Einvalalið Sprettara mun sjá um að reiða fram veitingar í Veislusalnum okkar á góðu verði. Í boði verða m.a. eðalsúpa ala Sprettur, pizzur og margt annað. Ljóst er að enginn fer þyrstur eða svangur heim að kvöldi loknu.

Við hvetjum alla áhugamenn um hestamennsku að taka kvöldið frá, koma í Sprettshöllina, njóta og horfa á spennandi keppni í nýrri grein. Aðgangur er frír.

Ráslistar verða birtir á þriðjudaginn 16. febrúar.


Við minnum svo á fésbókarsíðuna og snapchat deildarinnar. Endilega smellið like á viðburðin og bætið svo Áhugamannadeildinni sem vini á snappinu.

Hlökkum til að sjá ykkur öll.