Fréttir

Ungmennaflokkur á Íslandsmóti, Valdimar Bergstað leiðir fimmganginn

27.06.2009
Fréttir
Valdimar Bergstað og Oríon frá Lækjarbotnum leiða í fimmgangi ungmenna með einkunnina 6,67 þar á eftir koma Camilla Petra Sigurðardóttir á Hyllingu frá Flekkudal með einkunnina 6,37.

FM 2009: Barnagæsla og stúkur í boði

27.06.2009
Fréttir
Verið er að hnýta síðustu hnútana í undirbúningi á Kaldármelum og er ætlunin að í dag, laugardag, verði veitingatjaldið reist.

Valdimar Bergstað Íslandsmeistari í gæðingaskeiði ungmenna

26.06.2009
Fréttir
Valdimar Bergstað og Oríon frá Lækjarbotnum voru að tryggja sér Íslandsmeistatitil í gæðingaskeiði ungmenna.

Agnes Hekla Árnadóttir Íslandsmeistari í gæðingaskeiði unglinga

26.06.2009
Fréttir
Agnes Hekla Árnadóttir var rétt í þessu að tryggja sér Íslandsmeistatitil í gæðingaskeiði unglinga á hestinum Grun frá Hafsteinsstöðum með einkunnina 7,17.

Slaktaumatölt á Íslandsmóti, Agnes Hekla Árnadóttir leiðir.

26.06.2009
Fréttir
Forkeppni í slaktaumatölti var að ljúka. Agnes Hekla Árnadóttir og Öðlingur frá Langholti leiða með einkunnina 6,77 á eftir þeim koma Ólöf Rún Skúladóttir með einkunnina 6,53.

Ungmennaflokkur á Íslandsmóti, Valdimar Bergstað leiðir töltið.

26.06.2009
Fréttir
Forkeppni í ungmennaflokki var að ljúka.  Valdimar Bergstað og Leiknir frá Vakurstöðum leiða með einkunnina 7,30á eftir þeim eru Sara Sigurbjörnsdóttir og Nykur frá Hítarnesi með einkunnina 7.00.

Barnaflokkur á Íslandsmóti, Gústaf Ásgeir leiðir töltið.

26.06.2009
Fréttir
Forkeppni í barnaflokki var að ljúka.  Gústaf Ásgeir Hinriksson með Knörr frá Syðra-Skörðugili leiðir í tölti barna með einkunnina 6,83 á eftir honum er kemur frændi hans Konráð Valur Sveinsson.

Unglingaflokkur á Íslandsmóti, Rakel Natalie leiðir töltið

26.06.2009
Fréttir
Forkeppni í unglinga fjórgangi á Íslandsmóti lauk í dag. Efst er Rakel Natalie Kristinsdóttir á hestinum Vígari frá Skarði með einkunnina 7,57.  Á eftir henni kemur Arna Ýr Guðnadóttir með hestinn Þrótt frá Fróni með einkunnina 7,13 og þriðji er Steinn Haukur Hauksson á Silvíu frá Vatnsleysu með einkunnina 6,93.

Guðlaug Jóna Mattíasdóttir Íslandsmeistari í fimi ungmenna

26.06.2009
Fréttir
Fimi A2 Úrslit, ungmenni: 1. Guðlaug jóna Mattíasdóttir Zorró frá Álfhólum 4,90 2.Stella Sólveig Pálmarsdóttir Svaði frá Reykhólum 4,60