Fréttir

Hrossablót Söguseturs íslenska hestsins

09.10.2009
Fréttir
Sögusetur íslenska hestsins stendur fyrir hrossablóti í samstarfi við Hótel Varmahlíð og Veitingastaðinn Friðrik V. á Akureyri, laugardagskvöldið 17. október á Hótel Varmahlíð. Blótið hefst með drykk  kl. 19.30.

Námskeið um fortamningar hrossa

07.10.2009
Fréttir
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður upp á eins dags námskeið í fortamningum hrossa með Antoni Páli Níelssyni, reiðkennara. Á námskeiðinu verður m.a. farið í gegnum fyrstu nálgun við tryppið, hvernig það er gert bandvant og undirbúið undir frumtamningu.

Æskulýðsráðstefnu frestað

07.10.2009
Fréttir
Ákveðið hefur verið að fresta Æskulýðsráðstefnu LH sem halda átti nk. laugardag 10.okt. vegna ónægrar þátttöku.

Frá æskulýðsnefnd LH

05.10.2009
Fréttir
Æskulýðsnefnd LH stendur fyrir ráðstefnu fyrir æskulýðsfulltrúa á næstkomandi laugardag. Aðalumræðuefni ráðstefnunnar eru fræðslumál og öryggismál. Hverju hestamannafélagi er boðið að senda að lágmarki 2 fulltrúa á ráðstefnuna. Nú virðist vera að lítill áhugi er hjá félögunum ef miðað er við þær skráningar sem komnar eru. Af 49 félögum innan raða LH hafa einungis 16 félög skráð fulltrúa sinn á ráðstefnuna.  Þetta er langt frá vonum nefndarinnar og stjórnar LH og í ljósi aðstæðna í samfélaginu töldum við að fyrir þessu yrði áhugi, að fá hugmyndir, stuðning og hvatningu frá hinum félögunum fyrir vetrarstarfið sem framundan er, þar sem þarf að horfa í hverja krónu.

Formannafundur Landssambands hestamannafélaga

05.10.2009
Fréttir
Ágætu formenn hestamannafélaganna! Formannafundur LH verður haldinn föstudaginn 6. nóvember n.k. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst fundurinn klukkan 10:00.

500 manns hafa séð Kraft

05.10.2009
Fréttir
Um 500 manns hafa séð myndina Kraftur – Síðasti spretturinn, sem nú er sýnd í Sambíói í Kringlunni. Aðdáendur á Facebook síðu myndarinnar eru rúmlega eittþúsund og tvöhundruð frá 16 þjóðlöndum.

Aðalfundur Gæðingadómarafélagsins

02.10.2009
Fréttir
Aðalfundur G.D.L.H. verður haldinn 16. október 2009 klukkan 18:00 í Íþróttamiðstöðinni Laugardal.

Æskulýðsráðstefna LH

01.10.2009
Fréttir
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga minnir æskulýðsfulltrúa hvers félags í landinu að skrá sig á æskulýðsráðstefnuna sem haldin verður laugardaginn 10.okt. Íþróttamiðstöðinni í Laugardal kl.10-18.

Frumsýning myndarinnar Kraftur - síðasti spretturinn

01.10.2009
Fréttir
Kvikmyndin Kraftur - síðasti spretturinn var frumsýnd í Kringlubíói í gærkvöldi, 30.sept. Aðalhlutverk myndarinnar er í höndum stóðhestsins Kraft frá Bringu sem hefur unnið hug og hjörtu hestamanna um heim allan og þjálfara hans Þórarins Eymundssonar tamningameistara FT.