Fréttir

Sigríkur Jónsson í fyrstu úrtökuna

10.06.2009
Fréttir
Sigríkur Jónsson á Syðri-Úlfsstöðum í Austur-Landeyjum ætlar að taka þátt í úrtöku fyrir HM2009 í Sviss. Hann keppir á hestinum Zorró frá Grímsstöðum í Landeyjum, Orrasyni frá Þúfu.

Freyðir í gæðingaskeiðið

10.06.2009
Fréttir
Sigurður Sigurðarson segir mjög líklegt að hann muni skrá Freyði frá Hafsteinsstöðum í gæðingaskeið á HM úrtökunni sem fram fer 16. og 18. júní.

Diddi yngir upp

10.06.2009
Fréttir
Sigurbjörn Bárðarson verður ekki sjálfur með hest í úrtöku fyrir HM2009 í Sviss. Hann er þó ekki alveg búinn að segja skilið við heimsmeistaramótin, því Sara dóttir hans mun taka þátt í úrtökunni í ungmennaflokki á töltaranum Nykur frá Hítarnesi.

Skeiðleikar - ráslistar

10.06.2009
Fréttir
Aðrir Skeiðleikar Skeiðfélagsins verða haldnir að Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi í kvöld klukkan 20:00.

Sextíu kynbótahross komin inn á FM2009

09.06.2009
Fréttir
Sextíu kynbótahross hafa þegar náð lágmörkum inn á FM2009 á Kaldármelum. Fjörutíu og tvö eru með 8,0 og hærra í meðaleinkunn fyrir sköpulag. Seiður frá Flugumýri 2 er með hæstu byggingareinkunnina og Bjarmi frá Lundum og Prinsessa frá Birkihlíð með þá næst hæstu.

Illingur efstur á blaði

09.06.2009
Fréttir
Illingur frá Tóftum stimplaði sig rækilega inn í elsta flokk stóðhesta fyrir HM2009 í Sviss, á kynbótasýningu á Gaddstaðaflötum í síðustu viku. Hann fékk 8,73 í aðaleinkunn og er nú þriðji hæst dæmdi íslenski stóðhestur í heimi.

Seiður frá Flugumýri hækkar

09.06.2009
Fréttir
Heimsmeistari 4 vetra stóðhesta frá því á LM2008, Seiður frá Flugumýri, hækkaði um 10 kommur í aðaleinkunn á kynbótasýningu á Blönduósi. Hann hækkar fyrir sköpulag úr 8,48 í 8,57, og fyrir kosti úr 8,39 í 8,49.

Skeiðleikar - skráning í kvöld

08.06.2009
Fréttir
Miðvikudaginn 10. júní verða aðrir Skeiðleikar af fjórum sem Skeiðfélagið og stendur fyrir í ár. Verða þeir haldnir að Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði. Við skráningu þarf að gefa upp kennitölu knapa og ISnúmer hests.

Áfangar - reiðleiðir

08.06.2009
Fréttir
Ferðahandbókin Áfangar I og II bindi eru nú aðgengilegar á heimasíðu LH á pdf formi. Þar getur almenningur aflað sér upplýsinga og fróðleik um hinar ýmsu reiðleiðir sem þar er að finna.