Fréttir

Firmakeppni Freyfaxa- Úrslit

04.05.2009
Fréttir
Firmakeppni Freyfaxa 2009 var haldin í Stekkhólma þann 1. maí síðastliðinn. Keppnin er ein helsta tekjuöflun félagsins ár hvert og kann Freyfaxi þeim fyrirtækjum sem studdu félagið í ár miklar þakkir. Hér eru úrslit mótsins:

Mánahöllin í Keflavík vígð á laugardaginn

04.05.2009
Fréttir
Ný reiðhöll hestamannafélagsins Mána í Keflavík, Mánahöllin, verður vígð með pompi og prakt laugardaginn 9. maí. Boðið verður upp á hátíðardagskrá þar sem félagar í Mána, bæði börn og fullorðnir, sína listir sínar á eigin gæðingum, auk þess sem ýmsir góðir gestir koma í heimsókn. Húsið opnar klukkan 19.00.

Mette sló í gegn á Stórsýningu Fáks

04.05.2009
Fréttir
Ljóskur að leik komu verulega á óvart á Stórsýningu Fáks sem haldin var í Reiðhöllinni í Víðidal um helgina. Þar sýndi Mette Mannseth listir sýnar á hryssunni Happadís frá Stangarholti.

Ljóskur að leik á Stórsýningu Fáks

01.05.2009
Fréttir
Ljóskur að leik er eitt atriðiðanna sem verður á Stórsýningu Fáks annað kvöld, Mette Mannseth verður með tvö atriði á sýningunni  og annað þeirra heitir Ljóskur að leik atriði sem ekki má missa af. Sýnir hún samband milli manns og hest sem henni er einni lagið. Einnig verð  fjölmörg flott sýningaratriði. Sem dæmi Hafliði Halldórsson mætir sjálfur með Stórgæðinginn Ás frá Ármóti og Steingrímur Sigurðsson með Mídas frá Kaldbak.  

Íþróttamót Sleipnis um helgina

01.05.2009
Fréttir
Sleipnismenn halda íþróttamót sitt um helgina á svæði félagsins á Selfossi. Hægt er að sjá allar upplýsingar um mótið með því að smella á fyrirsagnir í RSS glugga hér til vinstri sem merktar eru "sleipnir.is".

Gullbjörninn ekki dauður úr öllum æðum

01.05.2009
Fréttir
Sigurbjörn Bárðarson er sigurvegari Meistaradeildar VÍS 2009. Hann skaut yngri keppinautum sínum hressilega ref fyrir rass. Sigur hans var í höfn áður en úrslit í síðustu keppnisgreinni fóru fram. Eyjólfur Þorsteinsson, sem var með 9 stiga forskot fyrir lokamótið, náði ekki nema einu stigi út úr síðustu tveimur greinunum.

Öll kynbótahross á filmu í Reykjavík, Hafnafirði og á Hellu

29.04.2009
Fréttir
Á síðasta ári byrjaði Ben Media með þá þjónustu að taka upp kynbótahross fyrir eigendur og voru á þriðja hundrað hross fest á filmu. Í ár er ætlunin að taka upp öll kynbótahross sem koma í sýningu í Reykjavík, Hafnafirði og á Hellu.

Lokaslagurinn í Meistaradeild VÍS

29.04.2009
Fréttir
Síðasta mót Meistaradeildar VÍS  á þessum vetri fer fram í Ölfushöllinni á morgun, fimmtudag. Fjórir knapar eiga fræðilegan möguleika á sigri: Eyjólfur Þorsteinsson, sem nú er efstur með 9 stiga forskot, Sigurbjörn Bárðarson, sem er í öðru sæti, og síðan þeir Hinrik Bragason og Sigurður Sigurðarson. Talið er næsta víst að slagurinn muni standa á mill þeirra Eyjófls og Sigurbjarnar.

Firmakeppni Sóta 2009 úrslit

29.04.2009
Fréttir
Firmakeppni Sóta / Minningarmót Ása og Önnu fór fram síðastliðinn laugardag, kosningardaginn,  í dásamlegu veðri.  Mótið hófst á stuttri hópreið um Álftanesið sem endaði á vellinum þar sem allir keppendur og fleiri til, tóku þátt í.  Eftir að formaður setti mótið og minntist þeirra hjóna hófu börnin keppnina.