Fréttir: Desember 2010

Íslandsmót 2010 - uppfærðir ráslistar í fjórgangi, tölt T2 og gæðingaskeiði

26.08.2010
Fréttir
Í dag fer fram forkeppni í fjórgangi, tölt T2 og gæðingaskeiði fram á Sörlavöllum. Hér eru uppfærðir ráslistar og dagskrá. Talsvert hefur verið um afskráningar, svo sumir keppendur færast til í dagskránni. Ráslistarnir verða hengdir upp í knapahesthúsum og á Sörlastöðum.

Íslandsmót 2010 - Úrslit eftir forkeppni í fimmgangi

26.08.2010
Fréttir
Íslandsmótið hófst í dag með keppni í fimmgangi í blíðskaparveðri á Sörlavöllum. Mikið var um tilþrif á frábæru keppnissvæði Sörlamanna. Efstu fimm fara beint í A-úrslit á laugardag. Í B-úrslitum á föstudag þarf Viðar að velja annan hestinn sinn og þar af leiðandi verða sjö hestar í B-úrslitum þar sem þrír eru jafnir í 11-13 sæti. Úrslit eftir forkeppni í fimmgangi eru eftirfarandi.

Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ

24.08.2010
Fréttir
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekskvennasjóð Íslandsbanka og ÍSÍ. Tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri.

Íslandsmót fullorðinna ráslistar

24.08.2010
Fréttir
Íslandsmót fullorðinna verður haldið á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 25.ágúst til 28.ágúst. Hér má sjá ráslistana fyrir mótið.

Landsmót í 60 ár - ljósmyndasýning

24.08.2010
Fréttir
Landssamband hestamannafélaga hefur í samvinnu við Reykjavíkurborg komið upp glæsilegri ljósmyndasýningu í Hljómskálagarðinum.

Meistaramót Andvara

23.08.2010
Fréttir
Meistaramót Andvara fer fram 3.-5.september á Kjóavöllum í Garðabæ.

Úrslit frá Melgerðismelum

23.08.2010
Fréttir
Þá er lokið ágætu móti á Melgerðismelum þrátt fyrir mikla rigningu á sunnudeginum. Sterkir hestar voru á mótinu og sáust tölur upp í 8,71 í A-flokki hjá Tristan frá Árgerði og 8,70 hjá Degi hjá Strandarhöfði.

Úrslit Félagsmóts Stíganda

23.08.2010
Fréttir
Félagsmót Stíganda fór fram í norðangarra með rigningu á milli. En keppendur létu það ekki á sig fá heldur tóku þátt í fínu móti á Vindheimamelum í dag. Eftir forkeppni í B-flokki sem var á hringvellinum þurfti að færa aðrar greinar á beinu brautina næst dómskúr vegna mikillar bleytu og leðju á hringvellinum. Tóku knapar þessu vel og öttu harða keppni.

Fljótlega hefjast fjallferðir og göngur

20.08.2010
Fréttir
Smalamennskur og fjárleitir eru vandasamt verk þar sem gæta þarf öryggis en alltaf ætti að hafa velferð fjárins og hrossanna að leiðarljósi.