Fréttir: 2010

"Tekið til kostanna"

21.04.2010
Fréttir
Stórsýningin "Tekið til kostanna" haldin á Sauðárkróki 24.apríl kl.20.30

Norðurlandamót í hestaíþróttum í Ypäjä í Finnlandi 4. – 8. ágúst.

21.04.2010
Fréttir
Norðurlandmót í hestaíþróttum verður haldið dagana 4. – 8. ágúst í Ypäjä í Finnlandi. Í Ypäjä eru aðstæður góðar og keppnisvæðið mjög skemmtilegt. Páll Bragi Hólmarsson verður liðsstjóri landsliðsins og sér hann einnig alfarið um að velja keppendur í landsliðshópinn.

Uppfærðar FIPO reglur 2010

20.04.2010
Fréttir
Hér má nálgast uppfærðar FIPO reglur fyrir íþróttakeppni á ensku. 1.apríl ár hvert eru FIPO reglurnar uppfærðar og gefnar út á heimasíðu FEIF, www.feif.org.

Stórsýning Fáks

20.04.2010
Fréttir

Meistaradeild VÍS frestað

20.04.2010
Fréttir
Á stjórnarfundi Meistaradeildar VÍS í dag var tekin sú ákvörðun að fresta Lokamóti Meistaradeildar VÍS. Stefnt er á að halda mótið eftir fjórar vikur og gæti þá mótið orðið á öðrum vikudegi en fimmtudegi.

Stórsýningin "Fákar og Fjör"

20.04.2010
Fréttir
Óhætt er að segja að Stórsýningin Fákar og fjör hafi staðið undir væntingum. Þrátt fyrir afföll vegna hósta og eldgoss var þetta hin besta skemmtun. Við Léttismenn þurfum ekki að kvíða framtíðinni þar sem Léttiskrakkarnir undir stjórn Linu Eriksson sýndu mjög skemmtilega sýningu og voru vel ríðandi. Bæði atriði Léttiskrakkanna tókst vel. Skemmtilegt var að sjá Ólaf Svansson og hans fjölskyldu sem og Baldvin Ara og Ágústu dóttur hans.  Kátir voru þeir nú Léttis-karlar í skrautreið sinni og lukkaðist hún vel og er gaman að sjá hve mörg „heima“ atriði voru í sýningunni.

Íþróttamóti Mána frestað

19.04.2010
Fréttir
Opna íþróttamóti Mána og TM hefur verið frestað vegna kvefpestar sem gengur nú yfir hrossin á Mánagrund og víðar. Mótinu er frestað um óákveðin tíma. Er þetta gert samkvæmt ráðleggingu frá dýralækni.

Páll Bragi liðstjóri NM2010

19.04.2010
Fréttir
Páll Bragi Hólmarsson, hrossaræktandi og tamningamaður í Austurkoti, hefur verið ráðinn liðstjóri íslenska landsliðsins í hestaíþróttum fyrir Norðurlandamót. Norðurlandamótið verður haldið í YPÄJÄ í FINNLANDI dagana 4.-8.ágúst 2010. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðunni www.nc2010.fi  

Hugur í Árbakkafjölskyldunni

19.04.2010
Fréttir
„Við stefnum í heildina með 15 til 20 hross í úrtöku fyrir Landsmót. Þetta eru allt verulega frambærileg hross, en það skýrist með vorinu hversu mörg eru tilbúin í keppni eða sýningar,“ segir Hinrik Bragason, hrossaræktandi og hestamaður með meiru, á Árbakka í Rangárþingi ytra.