Fréttir

Yfirlitssýningar hryssna í dag

30.11.1999
Fréttir
Lukka frá Stóra-Vatnsskarði var áfram langefst í flokki 7 vetra og eldri hryssna eftir yfirlitssýningar í morgun. Sýningum 7 vetra og eldri og sex vetra er lokið, en yfirlitsdómar 5 vetra hryssna standa yfir. Salka frá Stuðlum stendur efst fyrir yfirlit í flokki 4 vetra hryssna.

Kolskeggur frá Oddhóli hélt sínu

30.11.1999
Fréttir
Kolskeggur frá Oddhóli og Sigurbjörn Bárðarson héldu efsta sætinu, eftir milliriðla í A-flokki gæðinga í dag. Stakkur frá Halldórsstöðum, sem var í öðru sæti eftir forkeppnina og Sigurbjörn reið einnig, féll hins vegar niður í 14. sætið.

Yfirlitssýningum hryssna lokið

30.11.1999
Fréttir
Píla frá Syðra-Garðshorni stendur efst í flokki 5 vetra hryssna eftir yfirlitssýningar í dag, með 8,64 fyrir hæfileika og 8,50 í aðaleinkunn. Í flokki 4 vetra hryssna stendur Gletta frá Þjóðólfshaga hæst eftir yfirlitið með aðaleinkunnina 8,35.

Þorvaldur Árni og Rökkvi efstir í töltinu

30.11.1999
Fréttir
Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Rökkvi frá Hárlaugsstöðum eru efstir eftir forkeppni í tölti sem fram fór í dag. Vitað var fyrirfram að Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi myndu að vanda veita þeim félögum Þorvaldi og Rökkva harða keppni. Svo fór að Viðar og Tumi enduðu í öðru sæti með 8,43.

Röðull frá Kálfholti hélt efsta sætinu með 8,68

30.11.1999
Fréttir
Röðull frá Kálfholti og Ísleifur Jónasson eru enn efstir í B-flokki gæðinga eftir milliriðla sem riðnir voru í morgun, með einkunnina 8,68. Fast á hæla þeim koma Eldjárn frá Tjaldhólum með 8,66 og Akkur frá Brautarholti með sömu einkunn.

Seiður frá Flugumýri efstur 4 vetra stóðhesta

30.11.1999
Fréttir
Seiður frá Flugumýri er enn hæst dæmdur 4 vetra stóðhesta eftir yfirlitssýningarnar í dag. Kiljan frá Steinnesi er annar hæstur og Kappi frá Kommu hlaut þriðja hæsta dóminn í yfirlitinu, hækkaði sig talsvert frá kynbótasýningunni á miðvikudag.

Yfirlitssýningum 5 vetra stóðhesta lokið

30.11.1999
Fréttir
Röðun þriggja hæst dæmdu 5 vetra stóðhestanna breyttist ekki í yfirlitssýningunni sem fram fór í dag. Ómur frá Kvistum stendur enn efstur með 8,61 í aðaleinkunn, þá sömu og fyrir yfirlit.

Yfirliti 6 vetra stóðhesta lokið

30.11.1999
Fréttir
Einungis litlar breytingar urðu á dómum eftir yfirlitssýningar 6 vetra stóðhesta síðdegis. Glotti frá Sveinatungu er eftir sem áður hæst dæmdur.

Gaumur áfram hæst dæmdi 7 vetra stóðhesturinn

30.11.1999
Fréttir
Orrasonurinn og hæfileikahesturinn Gaumur frá Auðsholtshjáleigu er efst dæmdur 7 vetra stóðhesta og breyttist sú staða ekki eftir yfirlitssýningu. Aðaleinkunn Gaums hækkaði á Landsmótinu úr 8,54, sem hann hlaut á Héraðssýningú á Sörlastöðum í vor í 8,69.