Fréttir: Desember 2009

FM 2009: Gistimöguleikar hrossa og manna

25.06.2009
Fréttir
Að sögn mótshaldara er gistirými að fyllast í kringum Kaldármela en þeim sem ekki hyggjast nýta sér tjaldstæðin er bent á að leita til Markaðsskrifstofu Vesturlands sem veitir upplýsingar um gisti- og afþreyingarmöguleika í nágrenni Kaldármela:

Fjöldi kemur ríðandi á Kaldármela

25.06.2009
Fréttir
,,Það virðist vera mikill áhugi á því að koma ríðandi á Fjórðungsmót“ segir Eyþór J. Gíslason, formaður framkvæmdanefndar FM 2009. ,,Ég hef haft spurnir af þó nokkuð mörgum hópum sem eru að koma ríðandi, bæði að sunnan og norðan úr landi".

Íslandsmót yngri flokka - uppfærður ráslisti og dagskrá

25.06.2009
Fréttir
Nýr og endanlegur ráslisti fyrir Íslandsmót yngri flokka sem haldið verður dagana 25. - 28.júní á félagssvæði hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ.

Vel heppnaðir fundir háskólanema með hestamönnum

25.06.2009
Fréttir
Eins og greint hefur verið frá hafa hestakonurnar Guðný Ívarsdóttir og Hjördís Snorradóttir gert víðreist með fulltrúum LH og LM undanfarið vegna gagnaöflunar í lokaverkefni sem þær eru að skrifa við Háskóla Íslands.  Verkefnin eru alveg sjálfstæð og aðspurðar segja þær stöllur það hreina tilviljun að þær séu að vinna að þessu á sama tíma, í sama háskóla undir leiðsögn sama prófessors.    

Héraðsmóti UMSE aflýst

25.06.2009
Fréttir
Vegna dræmrar þátttöku verður því miður að hætta við héraðsmót UMSE í hestaíþróttum.

Úrslit miðnæturmóts Hrings

24.06.2009
Fréttir
Það er óhætt að segja að knapar, hestar, áhorfendur og starfsfólk miðnæturmótsins hafið notið sín í minni Svarfaðardals við mjög góðar aðstæður á Hringsholtsvelli í gærkvöldi.

FEIF Youth Camp

24.06.2009
Fréttir
FEIF Youth Camp verður haldið í Eagle Wisconsin Bandaríkjunum dagana 17. til 24. júlí.

Landsmót UMFÍ

24.06.2009
Fréttir
26. Landsmót UMFÍ verður haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí 2009. Landsmót UMFÍ er stærsta íþrótta- og fjölskylduhátíð landsins. Keppt verður í hestaíþróttum á félagssvæði hestamannafélagsins Léttis á Akureyri, Hlíðarholtsvelli dagana 10.-11.júlí. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.landsmotumfi.is

Opið íþróttamót á Gaddstaðaflötum

24.06.2009
Fréttir
Opið  punktamót verður haldið á vegum Geysis föstudagskvöld 26/7 kl 18:00 á Gaddstaðaflötum.