Fréttir

Dagskrá og ráslistar fyrir opna GK gluggamót Harðar

11.03.2011
Fréttir
Dagskrá og ráslista fyrir opna GK gluggamót Harðar er að finna hér. Mótið verður haldið laugardaginn 12.mars í reiðhöll Harðar.

Menntaráðstefna FEIF

11.03.2011
Fréttir
Alþjóðleg menntaráðstefna FEIF verður haldin á Hólum 25.-26.ágúst 2011. Námskeiðið er opið fyrir hestafræðinga, tamningamenn og þjálfara á 1.-3. stigi Matrixunnar og alþjóðlega dómara FEIF.

Reiðnámskeið Léttis

10.03.2011
Fréttir
Vegna frestunar á KEA mótaröðinni þurfum við að fresta reiðnámskeiðinu sem vera á mánudaginn 14. mars.

KEA mótaröðin/frestun

10.03.2011
Fréttir
Vegna veðurs þarf að fresta KEA mótaröðinni sem fara átti fram í kvöld. 10. mars.

HM Íslenska hestsins 2011

10.03.2011
Fréttir
Austurríki og íslenski hesturinn í allri sinni dýrð! Heimsmeistaramót íslenska hestsins verður haldið í St.Radegund/Austurríki dagana 1.-7. ágúst 2011.

Gæðingadómarar athugið

10.03.2011
Fréttir
Frestur hefur verið gefin til föstudagsins 11.mars með skil á dæmdum CD diskum. 

Menntaráðstefna FEIF

09.03.2011
Fréttir
Alþjóðleg menntaráðstefna FEIF verður haldin 25.-26.ágúst 2011 á Háskólanum á Hólum. Námskeiðið er opið fyrir hestafræðinga, tamningamenn, þjálfara á 1.-3.stigi Matrixunnar og alþjóðlega dómara FEIF.

Fimmgangur annað kvöld

09.03.2011
Fréttir
Keppt verður í fimmgangi annað kvöld í Meistaradeild í hestaíþróttum. Keppnin hefst klukkan 19:30 í Ölfushöllinni. Nú hafa allir keppendur skilað inn upplýsingum um keppnishrossin og er óhætt að segja að það verði hart barist annað kvöld.

Einkunnalágmörk á Íslandsmót 2011

09.03.2011
Fréttir
Skv. lögum og reglum LH ber keppnisnefnd að gefa út lágmörk fyrir Íslandsmót á hverju ári, 3 mánuðum fyrir Íslandsmót. Tekin var ákvörðun um að setja þau  hálfum  neðar en meistaraflokkslágmörk eru nú.