Fréttir: 2018

Þjálfaramenntun 1. og 2. stigs ÍSÍ

26.01.2018
Fréttir
Vorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 12. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Opinn fundur um LM2016

26.01.2018
Fréttir
Laugardaginn 20. janúar sl. stóð hestamannafélagið Skagfirðingur fyrir opnum fundi í Tjarnarbæ, félagsheimili félagsins, þar sem fjallað var um landsmótið 2016 sem haldið var á Hólum í Hjaltadal.

Afrekshópur LH 2018

26.01.2018
Fréttir
Nú er búið að velja 16 knapa í afrekshóp LH. Starfsárið hófst með áhugaverðum fyrirlestri Dr. Viðars Halldórssonar í samvinnu við meistaradeild æskunnar. Þar kynnti hann verkefnið „Sýnum Karakter“ sem er átaksverkefni um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum.

Fræðslukvöld um skeið

19.01.2018
Fréttir
Félag tamningamanna og Landssamband hestamannafélaga halda opið fræðslukvöld/málþing fimmtudagkvöldið 25. janúar um dómgæslu/útfærslu á skeiði í íþróttakeppni, gæðingakeppni og kynbótadómi. Fulltrúar dómarafélaga, knapa og fræðimanna halda ca. 10 mín tölu hver og svo verða umræðuhópar, spurningar og orðið laust.

Landsmótin að tínast inná WorldFeng

19.01.2018
Fréttir
Landsmótin 1970-1986 eru komin inn á WorldFeng. Aðgengi að þessu ómetanlega myndefni fæst með ársáskrift 4.900kr. Endilega tryggið ykkur áskrift á worldfengur.com

Menntaráðstefna FEIF á Hólum

17.01.2018
Fréttir
Vakin er athygli á Menntaráðstefnu FEIF 2018, sem verður haldin hér heima að Hólum dagana 23. - 25. mars nk. Á ráðstefnunni verður boðið upp á metnaðarfulla dagskrá með umfjöllun um nútímalegar kennslu- og þjálfunaraðferðir í hestamennsku, og verður hún ýmist reidd fram sem sýnikennsla eða fyrirlestrar.

LH í samstarf við VITA Sport

15.01.2018
Fréttir
Landssamband hestamannafélaga hefur um árabil verið í samstarfi við ferðaskrifstofu varðandi ferðir á heimsmeistaramót íslenska hestsins. Nú hefur LH gert samning við ferðaskrifstofuna VITA Sport, og var það Sigurður Gunnarsson fyrrum handboltakempa, sem skrifaði undir samninginn fyrir þeirra hönd og Jóna Dís Bragadóttir varaformaður LH og nefndarmaður í landsliðsnefnd sambandsins skrifaði undir fyrir hönd LH.

Vinnuhelgi stjórnar og starfsfólks

15.01.2018
Fréttir
Um liðna helgi héldu stjórnarmenn og starfsfólk LH austur í Hveragerði. Það hefur verið árlegt verkefni að taka eina helgi í upphafi tímabils, til skipulags og ráðagerða.

Yfirlýsing frá ÍSÍ

15.01.2018
Fréttir
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) harmar mjög að einstaklingar innan vébanda þess hafi þurft að þola ofbeldi í tengslum við íþróttastarf. ÍSÍ fordæmir með öllu allt ofbeldi í starfsemi íþróttahreyfingarinnar enda er slík hegðun óásættanleg og ólíðandi.