Fréttir

Líflandsmót æskulýðsdeildar Fáks

05.04.2011
Fréttir
Líflandsmót æskulýðsdeildar Fáks verður haldið 16.apríl næstkomandi. Mótið er eitt stærsta íþróttamótið innanhúss á hverju ári og er keppt í barna-, unglinga- og ungmennaflokkum í tölti, fjórgangi og fimmgangi.

Hátíð æskunnar á Suðurlandi

05.04.2011
Fréttir
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna sem hefst með SKRAUTREIÐ POLLA kl.14:00 í Rangárhöllinni v. Hellu 10. apríl.

Spennandi keppni í Uppsveitadeild Æskunnar

05.04.2011
Fréttir
Keppnin hélt áfram í uppsveitadeild æskunnar um helgina og var keppt í fimmgangi unglinga og þrígangi barna á laugardaginn 2. apríl. Keppnin var jöfn og spennandi og stóðu krakkarnir sig með stakri prýði og var einbeitingin mikil.

Ungfolasýning í Ölfushöllinni 9.apríl

05.04.2011
Fréttir
Árleg ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður laugardaginn 9. apríl 2011 í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli að þessu sinni í tengslum við Stóðhestaveislu Hrossaræktar.is.

Skráning á Opna íþróttamót Mána (WR)

05.04.2011
Fréttir
Skráning í Opna íþróttamót Mána (WR) verður miðvikudaginn 6 apríl í Mánahöllinni og í síma milli kl 20 og 22. Einnig verður tekið á móti skráningum á netfangið mani@mani.is.

Eftirvæntingin eykst!

01.04.2011
Fréttir
Eftirvæntingin eykst stöðugt fyrir Ístöltið „Þeir allra sterkustu“ sem fer fram á morgun, laugardaginn 2.apríl, í Skautahöllinni í Laugardal.

Fjölskyldustemning á stórsýningu Hestadaga

31.03.2011
Fréttir
Föstudagskvöldið 1.apríl kl 20:00 blása hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu í lúðra og sameinast um að halda fjölskylduvæna og hressilega sýningu í Reiðhöllinni í Víðidal, þar sem fjölbreytt skemmtun verður í boði og að sjálfsögðu verður íslenski hesturinn í aðalhlutverki. Gestir munu fá að fylgjast með börnum og unglingum sýna gæðinga sýna með stolti, ungmenni og fullorðnir sýna bæði klárhross og alhliðahross og að auki fá gestir innsýn í hluta af menntakerfi hestamanna, nefnilega Knapamerkin.

„Þeir allra sterkustu“ – Ráslisti

31.03.2011
Fréttir
Ístöltið „Þeir allra sterkustu“ fer fram á laugardaginn, 2.apríl, í Skautahöllinni  í Laugardal og hefst kl.20:00. KÆNAN býður keppendum og sýnendum uppá kjötsúpu, KÖKUHORNIÐ býður uppá bakkelsi, MUSTAD býður uppá kaffi og ÖLGERÐIN býður uppá gos.

Auður Karen og Friðrik X á Stóðhestaveislu 2011

31.03.2011
Fréttir
 Undanfarna daga hefur myndband nokkuð farið eins og eldur í sinu um netheima. Þar má sjá hina fimm ára gömlu Auði Karenu fá Hólkoti í Eyjafirði ríða stóðhestinum Friðriki X í hvassviðri.