Fréttir

Svellkaldar konur - fyrstur kemur, fyrstur fær!

01.03.2010
Fréttir
Skráning á Svellkaldar 2010 hófst í morgun og nú þegar eru 45 skráningar staðfestar! Aðeins 100 pláss eru í boði og því er um að gera að drífa sig í að skrá því hér gildir reglan "fyrstur kemur, fyrstur fær."

Grænhóll hlýtur Landbúnaðarverðlaunin 2010

01.03.2010
Fréttir
Hrossaræktarbúið á Grænhól í Ölfusi hlaut Landbúnaðarverðlaunin 2010 sem veitt voru á Landbúnaðarþingi Bændasamtaka Íslands. Það var Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem afhenti Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur verðlaunin.

Sigurbjörn með fyrirlestur og sýnikennslu í Sörla

01.03.2010
Fréttir
Ert þú kominn í keppnisgírinn ?? Eða langar þig að vita hvernig atvinnumenn undirbúa og þjálfa sína hesta fyrir keppni ?? Sigurbjörn Bárðarson mun heimsækja okkur í Sörla á Sörlastaði og vera með fyrilestur á miðvikudagskvöldið 3 mars. kl 19:00  þar sem hann fer yfir undirbúning og þjálfun með keppni í huga.

Aðalfundur hestamannafélagsins Léttis

01.03.2010
Fréttir
Aðalfundur Hestamannafélagsins Léttis, haldin í Top Reiter höllinni þriðjudaginn 23. febrúar, lýsir yfir fullum stuðningi við og fagnar ákvörðun stjórnar LH frá 29. desember s.l. um að hefja fyrst viðræður við Hestamannafélagið Fák í Reykjavík með það að markmiði að halda Landsmót Hestamanna á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík 2012.

Slaktaumatölt annað kvöld

26.02.2010
Fréttir
Búist er við mikilli stemmingu í Ölfushöllinni annað kvöld, en þá gefst einstakt tækifæri til að skella sér á Meistaradeild VÍS á laugardagskvöldi. Fremstu knapar landsins halda áfram baráttu sinni um stig í deildinni og verður engu til sparað, því þeir munu mæta til leiks með marga af flottustu tölturum landsins.

Skrifstofa LH lokuð eftir hádegi

26.02.2010
Fréttir
Skrifstofa Landssambands hestamannafélaga verður lokuð í dag, föstudaginn 26.febrúar, eftir kl.12:00 vegna jarðarfarar.

Liðakeppni á Svellköldum

26.02.2010
Fréttir
Boðið verður upp á skemmtilega nýbreytni á Ístöltsmóti kvenna "Svellköldum konum" í Skautahöllinni í Laugardal þann 13. mars nk. þ.e.að vera með liðakeppni. Keppendunum hundrað verður skipt í fimm lið, en dregið verður í liðin úr öllum keppnisflokkum og munu 20 knapar skipa hvert lið.

Skráning Svínavatn 2010

26.02.2010
Fréttir
Skráningar berist á netfangið gudinga@ismennt.is í síðasta lagi þriðjudaginn 2. mars. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, nafn knapa,  nafn og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu.

Forsala aðgöngumiða hafin á LM 2010 20-25% afsláttur

26.02.2010
Fréttir
Forsala aðgöngumiða er hafin á Landsmót hestamanna 2010, sem fer fram á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 27.júní – 4.júlí. Forsalan fer fram rafrænt á slóðinni www.landsmot.is. Söluferlið er einfalt og er væntanlegur landsmótsgestur leiddur í gegnum ferlið skref fyrir skref.