Fréttir

Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun!

26.02.2010
Fréttir
Vorannarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 15. mars nk.  Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið sem slíkt. Fjarnámið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófa.                

MDVÍS frestað

25.02.2010
Fréttir
Stjórn Meistaradeildar VÍS í samstarfi við keppendur í deildinni hefur tekið ákvörðun um að fresta mótinu sem halda átti í kvöld. Verið er að klára að velja dagsetningu fyrir mótið en verður það einhvern næstu daga. Það skýrist vonandi innan skamms.

Tilkynning frá MDVÍS

25.02.2010
Fréttir
Eins og Sunnlendingar hafa orðið varir við síðustu klukkutímana kyngir niður snjó og einnig mikill skafrenningur með því á þjóðvegum landsins. Stjórn Meistaradeildar VÍS hefur verið í sambandi við Vegagerðina og Veðurstofu Íslands í morgun.

Ályktun frá aðalfundi Funa

25.02.2010
Fréttir
Aðalfundur Hestamannafélagasins Funa, haldinn í Funaborg á Melgerðismelum 25. feb. 2010 fagnar því að stjórn LH hafi sýnt þá víðsýni að ganga til samninga við Fák um landsmót 2012 í Reykjavík.

Fáksfréttir

24.02.2010
Fréttir
Reiðtúrinn á laugardaginn Riðið verður upp í Hörð og lagt af stað kl. 14:00. Riðin verður strandarleiðin (framhjá Korpúlfsstöðum) og áð oft á leiðinni svo þetta er bara einna hesta ferð. Kaffi og meðlæti í félagsheimili Harðar. Sjáumst á laugardaginn.

Meistaradeild VÍS - ráslistar

24.02.2010
Fréttir
Á fimmtudag verður þriðja mótið í Meistaradeild VÍS og þá er keppt í slaktaumatölti. Nú hafa allir knapar skilað inn hvaða hesta þeir munu mæta með og eru engar smá stjörnur þar á ferðinni.

Opið töltmót á Hnjúkatjörn

23.02.2010
Fréttir
Opið töltmót á Hnjúkatjörn sunnudaginn 28. febrúar kl. 13.00. Skráning er hjá Óla Magg á netfangið: sveinsstadir@simnet.is fyrir miðnætti fimmtudag 25. febrúar.

Stjörnutölt Léttis 2010

23.02.2010
Fréttir
Hið árlega Stjörnutölt verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri 20.mars n.k. Keppni úrvalstöltara á ís og opin stóðhestakeppni 5 vetra og eldir. Þess má geta að skráningu í stóðhestakeppnina lýkur þriðjudaginn 16. mars kl. 20:00.

Til eigenda og umsjónarmanna útigangshrossa

23.02.2010
Fréttir
Langvarandi frost og snjóleysi víða á landinu veldur því að sumstaðar er nú ekkert vatn að hafa fyrir útigangshross. Eigendur og umráðamenn eru minntir á skyldur sínar til að fylgjast vel með hrossum á útigangi og og tryggja að þau hafi aðgang að vatni.