Fréttir

Knapar og hestar í kalt bað

03.02.2009
Fréttir
Knapar og hestar í Meistaradeild VÍS fengu heltur betur kalt bað við setningu deildarinnar, sem fram fór á Tjörninni í Reykjavík. Tíu til fimmtán hestar lentu í vök þegar ísinn brotnaði undan þeim.

Helluskeifur fluttar að heiman

03.02.2009
Fréttir
Helluskeifur hleyptu heimdraganum fyrir ári síðan og er fyrirtækið nú með aðsetur í Stykkishólmi. Eigendur eru Agnar Jónasson og Svala Jónsdóttir. Hellurskeifur bjóða nú skaflaskeifur á hagstæðu verði.

Stjórn LH fundar á Blönduósi

03.02.2009
Fréttir
Stjórn LH heldur vinnufund á Blönduósi um næstu helgi. Í tengslum við fundinn er hestamönnum í Húnaþingi, Skagafirði og Siglufirði boðið til almenns fundar næstkomandi föstudag, 6. febrúar, í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi.

Steingrímur J. og hestar á Reykjavíkurtjörn

02.02.2009
Fréttir
Á morgun, þriðjudaginn 3. febrúar klukkan 14:00 verður haldinn blaðamannafundur blaðamannafundur fyrir Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum í Tjarnarkaffi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Strax á eftir munu knapar í Meistaradeild VÍS sýna gæðinga á Tjörninni í Reykjavík til kynningar á deildinni. Kynningin mun fara fram á ísnum næst Tjarnargötunni. Að sýningu lokinni mun fara fram blaðamannafundur.

Gæðingakeppnin á að vera djörf

02.02.2009
Fréttir
„Við hjá LH erum alltaf tilbúin til ræða málin,“ segir Sigurður Ævarsson, formaður keppnisnefndar og stjórnarmaður í LH. „Við höfum verið að kynna gæðingakeppnina erlendis undanfarin ár. Viðtökurnar eru ekki eins eindregnar og við bjuggumst við.“

Svellkaldar konur í Skautahöllinni

02.02.2009
Fréttir
Hið vinsæla ístöltsmót kvenna „Svellkaldar konur“ verður haldið í skautahöllinni í Laugardal í Reykjavík laugardaginn 28. febrúar. Að þessu sinni verður boðið upp á keppni í þremur flokkum. Ekki verður boðið upp á yngri flokk þar sem sérstakt æskulýðsmót á ís mun fara fram á sama stað laugardaginn 7. mars.

Sjö nýir knapar í KS-Deildina

29.01.2009
Fréttir
Sjö nýjir knapar bættust í KS-Meistaradeild Norðurlands síðastliðið þriðjugdagskvöld. Keppt var í fjórgangi og fimmgangi. Árni B. Pálsson og Karen Líndal Marteinsdóttur voru jöfn og efst í fjórgangi og Líney M Hjálmarsdóttir varð efst í fimmgangi. Sjö nýjir knapar bættust í KS-Meistaradeild Norðurlands síðastliðið þriðjugdagskvöld. Keppt var í fjórgangi og fimmgangi. Árni B. Pálsson og Karen Líndal Marteinsdóttur voru jöfn og efst í fjórgangi og Líney M Hjálmarsdóttir varð efst í fimmgangi.

íþróttamaður Faxa

28.01.2009
Fréttir
Á aðalfundi Faxa sem haldin var í desember var Heiðar Árni Baldursson Múlakoti kosinn íþróttamaður Faxa annað árið í röð. Hann hefur verið mjög duglegur að keppa, sem dæmi hefur hann verið í úrslitum á öllum vetrarmótum Faxa og oft í 1. sæti.

Smali fyrsta mót í Meistaradeild VÍS

28.01.2009
Fréttir
Fyrsta mót Meistaqradeildar VÍS í vetur verður haldið í næstu viku, fimmtudagskvöldið 5. febrúar. Keppt verður í smala, sem einnig gengur undir nafninu hraðafimi.