Fréttir

Stjórnin fundar á Vesturlandi

09.02.2012
Fréttir
Næstkomandi laugardag boðar stjórn LH til fundar með hestamönnum á Vesturlandi. Verður fundurinn haldinn í hesthúsinu í Hrísdal á Snæfellsnesi og byrjar kl. 16 með ávarpi formanns LH, Haraldar Þórarinssonar.

Grímutölt í Fáki

09.02.2012
Fréttir
Á laugardaginn verður Grímutölt í Reiðhöllinni í Víðidal kl. 16:00. Það er skilyrði að mæta í grímubúningi til að geta tekið þátt.

Opnir tímar í reiðhöllinni hjá Rikka

09.02.2012
Fréttir
Eins og félagsmenn hafa eflaust tekið eftir þá er enn ekki risin reiðhöll á Kjóavallasvæðinu. Hestamannafélagið Gustur hefur því leigt aðstöðu í reiðskemmu Rikka að Hamraenda 16-18 alla fimmtudaga milli kl. 17.00 og 19.00.

Klikker námskeið og hestastrætó breyttur tími

08.02.2012
Fréttir
Ragnheiður Þorvaldsdóttir reiðkennari verður með "klikker námskeið" eða smellunámskeið í Glaðheimum tvo sunnudaga í febrúar þann 19. og 26. , þar sem hesturinn er þjálfaður með hljóðmerkjum.

Gæðingafimi - ráslistar

08.02.2012
Fréttir
Á morgun fimmtudag verður keppt í gæðingafimi í Meistaradeild í hestaíþróttum. Mótið hefst klukkan 19:30 í Ölfushöllinni.

Fáksfréttir

07.02.2012
Fréttir
Vegna stormsviðvörunar verðaekki gámar í dag. Þeir koma á morgun (miðvikudag) kl. 17:00-19:00

Fasteignagjöld

07.02.2012
Fréttir
Yfirvöld í Reykjavík ákváðu um áramótin að hækka fasteignagjöld á hesthús í þéttbýli. Hestamenn eru mjög ósáttir við þessa hækkun.

YFIRLÝSING FRÁ LH VEGNA UMRÆÐU UM FASTEIGNARGJÖLD Á HESTAHÚS

07.02.2012
Fréttir
Frá árinu 2007 hefur Landsamband hestamannafélaga reynt að fá Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðherra sveitarstjórnarmála til að binda enda á það óréttlæti að flokka hestahús í mismunandi flokka eftir því hvort þau standa á lögbýlum eða í þéttbýlli. .

Gustur / Minnum á minna/meira vön börn og pollar 18. feb.

06.02.2012
Fréttir
18. febrúar byrja reiðnámskeið fyrir minna/meira vön börn og polla sem haldin verða í reiðhöllinni að Hamraenda 16-18. Kennsla verður á tímabilinu frá kl. 11- 13:30 sex laugardaga í röð. Verð 7.000.- kr.