14.01.2009
Dómarfélag LH leitar nú að dómaraefnum á Norðaustur- og Austurlandi. Mjög fáir starfandi gæðingadómarar eru á þessum svæðum, tveir á Akureyri, einn á Húsavík, og þrír á Hornafirði.
14.01.2009
Gæðingadómarar munu fá heimaverkefni fyrir næstu upprifjunarnámskeið, sem haldin verða í mars og apríl. Útbúinn hefur verið DVD diskur með upptökum af nokkrum gæðingum frá LM2008.
13.01.2009
Tryggvi Björnsson og Magnús Jósefsson í Steinnesi hafa keypt stóðhestinn Braga frá Kópavogi. Seljandi er Jónas Hallgrímsson á Seyðisfirði. Tryggvi hyggst beita Braga á keppnisvellinum á komandi keppnistímabili.
13.01.2009
Vetrarmót af ýmsu tagi eru orðin mikil að umfangi. Meistaradeildarmót norðan og sunnan heiða eru hvað viðamest. Hefðbundin ísmót eru á sínum stað, bæði innan dyra og utan. Einnig reiðhallarsýningar af ýmsu tagi. LH stendur fyrir tveimur ísmótum.
13.01.2009
Sameining landbúnaðar- háskólanna hefur ekki verið rædd sérstaklega, alla vega ekki svo ég viti, segir Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Menntamálaráðherra segir að verið sé að fara yfir leiðir til að styrkja rekstur skólanna.
13.01.2009
Mbl.is segir frá því í morgun að tvö sem enn voru alvarlega veik vegna salmonellu- sýkingarinnar sem kom upp við Esjurætur fyrir jólin, hafi verið aflífuð í gær. Eitt var fellt daginn áður.
13.01.2009
Matvælastofnun heldur fræðslufund um heilbrigði íslenska hestsins þriðjudaginn 27. janúar 2009 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verða teknir fyrir þættir sem ógnað geta heilbrigði og velferð hrossastofnsins og fjallað um viðbrögð við hugsanlegri vá. Þá verða nýleg dæmi um salmonellusýkingu og brot á dýraverndarlögum til umfjöllunar.
12.01.2009
Skagfirðingar hafa tekið Huginn frá Haga á leigu næsta sumar. Huginn stimplaði sig inn sem kynbótahestur í fyrra. Þá komu fram nokkur úrvals hross undan honum.
12.01.2009
Hýsi ehf og Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ hafa náð samningum um að Hýsi sjái um að útvega og reisa reiðhöll á svæði Harðar á Varmárbökkum. Reiðhöllin er 30 x 81 m = 2430 m2 að stærð og vegghæð 4,2 m. Iðnkúnst ehf sér um að reisa húsið.
12.01.2009
Félag tamingamanna býður upp á tveggja helga reiðnámskeið með einum allra besta reiðkennara landsins, Antoni Páli Níelssyni. Nánast óþarft er að kynna Anton en hann hefur starfað sem reiðkennari hjá Hólaskóla um árabil ásamt því að vinna við tamningar og þjáfun.