20.09.2012
Skrifstofa LH minnir formenn æskulýðsnefnda hestamannafélaganna á að síðasti skiladagur ársskýrslna síðasta starfsárs er 23. september n.k.
20.09.2012
Síðasti dagur til að skila inn kjörbréfum vegna 58. Landsþings Landssambands hestamannafélaga er í dag 20. september.
19.09.2012
Sameinum fólk í ástríðunni í kringum íslenska hestinn. Þessi markmið alþjóðlega Íslandshestasambandsins FEIF eru líka markmið Norðurlandanna fyrir heimsmeistaramótið 2015 í Danmörku en þau munu í sameiningu skipuleggja það mót.
19.09.2012
Kjörnefnd LH vekur athygli á lagabreytingum sem samþykktar voru á seinasta landsþingi LH varðandi kjör til stjórnar sambandsins.
18.09.2012
Til viðbótar við reiðleiðir í kortasjánni, sem voru 5586 km af reiðleiðum á suður- og vesturlandi, eru komnir 1278 km af reiðleiðum í Húnavatnssýslum. Um er að ræða flestar stofn- og héraðsleiðir í sýslunum.
17.09.2012
Á hverju hausti skila æskulýðsnefndir félaganna inn skýrslum sínum til æskulýðsnefndar LH. Skýrslurnar lýsa í megindráttum því metnaðarfulla æskulýðsstarfi sem fram fer innan okkar góða sambands og ber hestamannafélögunum um allt land fagurt vitni.
13.09.2012
Haustfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 8. október nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000.-
13.09.2012
Lífland opnar lagersölu í nýju lagerhúsnæði að Brúarvogi 1 3 föstudaginn 14. september. Opið verður frá 12:00 til 18:00 virka daga en frá 12:00 til 16:00 á laugardögum (lokað á sunnudögum).
13.09.2012
Ályktun frá félagsfundi í Sörla 10.september 2012 vegna nýs deiluskipulags um Heiðmerkursvæðið.
10.09.2012
Nokkrir verðlaunagripir frá Landsmótinu í sumar bíða enn eigenda sinna á skrifstofu Landssambands hestamannafélaga. Vill starfsfólk hvetja eigendurna til að vitja gripanna við næsta mögulega tækifæri.