01.07.2010
Vegna ástandsins höfum við ákveðið að fella niður fyrirhugaða félagsferð Léttis í Bárðardal.
30.06.2010
Gullmótið í hestaíþróttum verður haldið helgina 3. - 4. júlí á félagssvæði Fáks, Víðidal.
Ölgerðin er stærsti styrktaraðili mótsins og mun Barki gefa keppendum í fyrsta sæti í öllum greinum Marstall fóðurpoka. Mikill
áhugi er fyrir mótinu og heyrst hefur að hópur af erlendum gestum líti í dalinn á meðan á móti stendur.
29.06.2010
Undirrituð skoðaði ferðahesta Íshesta á Mælifellsdal, eftir ferð yfir Kjöl, föstudaginn 25. júní sl. Fylgst var með hópnum
þar sem hann fór yfir Mælifellshálsinn stuttu áður en komið var til byggða.
29.06.2010
Sem flestum er kunnugt þá hafa verið mikil skrif í fjölmiðlum að undanförnu og einnig verið umfjallanir í ljósvakamiðlum vegna
verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs og full ástæða verið til.
28.06.2010
Aðalskipulög margra sveitarfélaga hafa verið og eru í kynningarferli þessa daganna, þar má m.a. nefna aðalskipulög sveitarfélaganna
Norðurþings, Húnavatnshrepps, Skagastrandahrepps, Strandabyggðar, Fjallabyggðar, Ásahrepps, og Fjarðabyggðar.
28.06.2010
Hollaröð á kynbótasýningu á Gaddstaðaflötum dagana 28. júní - 1. júlí 2010 er komin á vefinn hjá okkur.
Dómar hefjast kl. 12.30 mánudaginn 28. júní og þeim lýkur með yfirlitssýningu fimmtudaginn 1. júlí. Yfirlitssýning mun hefjast
kl. 9.00 með sýningu hryssna 7 vetra og eldri.
28.06.2010
Það lá að endum að Alþingi auðnaðist að samþykkja samgönguáætlun fyrir árin 2009-2012 á síðustu metrum
þingsins. Það lá fyrir að ekki yrði um neinar fjárheimildir til reiðvega að ræða fyrr en samgöngáætlun yrði
samþykkt á Alþingi.
28.06.2010
Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru uppi í hestasamfélaginu var ákveðið eftir samráðsfund hagsmunaaðila í
hestamennsku að best væri að fresta Íslandsmóti fullorðinna í hestaíþróttum til 25.-28. ágúst n.k.
25.06.2010
Fundur hagsmunaaðila í hestamennsku, sem haldinn var fimmtudaginn 24.06.2010, lýsir yfir stuðningi við starf dýralæknis hrossasjúkdóma hjá
MAST og Keldur, tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum, í baráttu þeirra við að greina sjúkdóm þann
sem herjar á íslenska hrossastofninn.
25.06.2010
Landssamband hestamannafélaga, Félag tamningamanna og Félag hrossabænda stóðu fyrir fundi í gær, fimmtudaginn 24.júní, þar sem
rætt var um stöðu hestamennskunnar á Íslandi í dag. Þar voru samankomnir fulltrúar ráðuneyta, háskóla,
hrossaútflytjenda, MAST, BÍ, LM auk fundarhaldara.