01.02.2010
Meistaradeild UMFÍ og LH verður haldin í apríl 2010 í Rangárhöllinni. Mótadagar eru eftirfarandi:
01.02.2010
Landsliðsnefnd LH vill vekja athygli á þeim ístöltum sem haldin verða í vetur til styrktar íslenska landsliðinu í
hestaíþróttum.
01.02.2010
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna í samvinnu við aðra æskulýðsfulltrúa innan FEIF mun í sumar gefa íslenskum unglingum kost
á að heimsækja önnur aðildarlönd FEIF. Fyrirkomulagið verður þannig að unglingar á aldrinum 14 – 17 ára verða í 1
– 2 vikur hjá fjölskyldum sem eiga íslenska hesta og taka þátt í þeirra daglegu störfum. Þetta er tækifæri fyrir
áhugasama krakka að kynnast hestamennskunni á erlendri grund og mynda vinatengsl.
01.02.2010
Námskeið fyrir mikið vana knapa hja Mette Manseth reiðkennara á Hólum.
Frábært tækifæri fyrir mjög vana knapa sem vilja skerpa betur á hæfni sinni að fá kennslu frá einum fremsta reiðkennara
landsins. Aðeins 1 kennsluhelgi, þann 20. og 21. febrúar, kennt verður frá kl. 8:00 - 16:00 báða dagana. Staðsetning: Reiðhöllin
í Víðidal. Takmarkaður fjöldi (Fáksfélagar ganga fyrir). Verð: 29.000.
29.01.2010
Ákveðið hefur verið að halda Bikarkeppni á milli hestamannafélaga á höfuðborgarsvæðinu líkt og í fyrra. Mótin eru
haldin á föstudagskvöldum og standa í um einn og hálfan tíma. Mótin eru stutt og er lögð rík áhersla á að þau
séu áhorfendavæn og að mikilvægt sé að ná upp stemningu á áhorfendapöllunum.
29.01.2010
Fyrsta keppni í Meistaradeild VÍS fór fram í gær, fimmtudaginn 28.janúar, en þá var keppt í Smala. Sigurvegari kvöldsins var
Árni Björn Pálsson sem keppir fyrir lið Líflands. Úrslitin má sjá hér fyrir neðan.
29.01.2010
Stjörnutölt 2010 verður haldið í Skautahöllinni Akureyri þann 20. mars. Takið daginn frá og komið og horfið á skemmtilega keppni sem
á engan sinn líkan.
27.01.2010
Meistaradeild VÍS hefst á morgun, fimmtudaginn 28.janúar kl. 19.30, á keppni í Smala. Hér fyrir neðan má sjá ráslistann:
25.01.2010
Laugardaginn 23.janúar var opnað kaffihús í Reiðhöllinni í Víðidal á neðri hæð húsins (andyrinu). Loksins, loksins geta
hestamenn komið saman og fengið sér kaffi og með því í notarlegheitum. Til að byrja með verður opið frá kl. 12:00 - 18:00 á
laugardögum og sunnudögum.
25.01.2010
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir tímabilið
júlí 2009 til júní 2010. Veittir verða styrkir á bilinu 50.000.- 100.000.- krónur, allt eftir eðli umsóknar og fjölda
þeirra.