09.06.2008
Mjög góð þátttaka var í skráningu ræktunarbússýninga á Landsmót 2008. Tuttugu ræktunarbú sendu inn umsókn um þátttöku á komandi Landsmóti en skv. venju eru það tíu bú sem valin eru úr umsóknum. Ræktunarbúum áranna 2006 og 2007 er jafnframt boðin þátttaka þannig að í heild eru það 12 bú sem koma fram. Vegna þessa mikla fjölda og þeirrar staðreyndar að öll búin eru verðug til þátttöku í sýningu á Landsmóti 2008 hefur verið ákveðið að dregið verði um þátttöku í sýningunni.
08.06.2008
Margir hafa beðið með óþreyju eftir því að afþreyingar- og skemmtidagskrá Landsmóts verði kynnt. Helstu áherslur í ár eru að Landsmót sé fjölskylduhátíð hestamanna. Opnaður verður glæsilegur afþreyingargarður fyrir unga fólkið, Húsasmiðjugarðurinn.
06.05.2008
Dregið var úr myndum vikunnar og vinningshafinn í ljósmyndakeppni Landsmóts varð Hekla Hermundsdóttir. Við óskum henni hjartanlega til hamingju og hlýtur Hekla í vinning tvo vikupassa á Landsmót.
17.03.2008
Starfsfólk óskast í veitingasölu á Landsmóti Hestamanna 30.júní 6 júlí.
Sveigjanlegur vinnutími í boði. Upplýsingar eru veittar í síma: 660 7889 eða á netfanginu: brynja@mulakaffi.is
17.03.2008
Aðalfundur hestamanna- félagsins Faxa verður haldinn í Brún í Bæjarsveit, þriðjudaginn 16.desember kl: 20:30. Venjuleg aðalfundarstörf.
13.03.2008
Örfá stæði eru enn laus í hjólhýsastæði með aðgengi að rafmagni á Landsmót hestamanna. Síðasti dagur til að kaupa í þessi stæði er nk. sunnudagur, 15. júní.
08.01.2008
Fræðslunefnd Fáks hefur ákveðið að boðið verði upp á þá nýbreytni í vetur að boðið verður upp á stigskipt knapamerkjanámskeið fyrir fullorðna. Í boði eru 1, 2 og 3 stig. Áætlað er að þau byrji um miðjan janúar 2009.
08.01.2008
Kynningarfundur fyrir þá sem þegar hafa skráð sig á knapamerkjanámskeið fyrir fullorðna verður haldinn í félagsheimili Fáks fimmtudaginn 8. Janúar kl. 20.00.
08.01.2008
Minnum á skráninguna í kvöld frá kr. 18.00-20.00 í Félagsheimili Fáks
08.01.2008
Hestamannafélagið Fákur býður félagsmönnum sínum upp á aðstoð reiðkennara öll miðvikudagskvöld í Reiðhöllinni í Víðidal. Þessi þjónusta er í boði Fáks og er frítt fyrir alla skuldlausa félagsmenn. Fyrirkomulagið verður þannig að reiðkennarinn verður staðsettur í Reiðhöllinni öll miðvikudagskvöld á milli klukkan átta og tíu fram að páskum.