23.11.2009
Síðastliðinn laugardag vígði hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ stórglæsilega reiðhöll. Reiðhöllin
er mjög stór og glæsileg en gólflötur hennar er svipað stór og reiðhöllin í Víðidal.
23.11.2009
Halldór Halldórsson formaður samgöngunefndar Landssambands hestamannafélaga var síðastliðinn miðvikudag, á aðalfundi félagsins,
gerður að heiðursfélaga Andvara. Halldór hefur verið ötull félagi í hestamannafélaginu Andvara í rúmlega tvo áratugi
eða frá árinu 1984.
23.11.2009
Aðalfundur hestamannafélagsins Andvara var haldinn miðvikudaginn 18. nóvember síðastliðinn.
Ásamt hefðbundnum aðalfundarstörfum var farið yfir skipulagsmál Andvara.
17.11.2009
Landssamband hestamannafélaga vill vekja athygli á því að umsóknarfrestur til þess að sækja um mótadaga er til 10.des.nk.
Umsóknarfrestur til þess að sækja um íþrótta- og gæðingadómara er til 15.des.nk.
17.11.2009
Þriðjudaginn 24. nóvember nk. mun Þórarinn Eymundsson vera með sýnikennslu í Topreiterhöllinni á Akureyri kl. 20.
Þórarinn tamningameistari, mun sýna fjölbreytt vinnubrögð við þjálfun og tamningu, en hann er einn þekktasti knapi og reiðkennari landsins
og margfaldur Íslands- og Heimsmeistari.
17.11.2009
Laugardaginn 21. nóvember n.k verður haldin folaldasýning í Rangárhöllinni á Hellu.
Úrval bestu folalda undan gengina sýninga í Rangárvallasýslu etja þar kappi um glæsilega vinninga.
16.11.2009
Helga Thoroddsen verður með almenna kynningu á Knapamerkjunum í Félagsheimili Hestamannafélagsins Skugga í Borgarnesi fimmtudaginn 19. nóvember
kl.20.00.
13.11.2009
Töluverð umræða hefur verið um að dagskrá Landsmóts undanfarin ár hafi verið of þéttskipuð. Á opnum fundi um
Landsmót sem haldinn var í október 2008, stuttu eftir að síðasta Landsmóti lauk, voru fundarmenn almennt sammála að létta þyrfti
á dagskránni og gera þyrfti ráð fyrir fleiri hléum og þá sérstaklega með helgardagskránna í huga.
13.11.2009
Á Formannafundinum, sem haldin var þann 6. nóv. síðastliðinn, var mikið rætt um komandi Landsmót. Birgir Leó Ólafsson, formaður
mannvirkjanefndar kynnti skýrslu nefndarinnar og greindi frá úttektum á hugsanlegum Landsmótssvæðum. Þær umsóknir sem til
meðferðar eru fyrir Landsmót 2012 eru Fákur (Víðdalur) og Gaddstaðaflatir við Hellu og Landsmótsárið 2014 sækja fulltrúar
Akureyrar, Gaddstaðaflata, Melgerðismela og Vindheimamela um.
12.11.2009
Ákveðið hefur verið að hafa uppskeruhátíðina þann 5. Desember (frestast um hálfan mánuð miðað við það sem
fyrirhugað var). Allir sjálfboðaliðar og þeir sem starfa í nefndum á vegum félagsins er boðið. Þeir sem fá ekki boðskort fyrir
mánaðarmótin eru beðnir að senda okkur póst á fakur@simnet.is eða hringja í síma 898-8445.