06.02.2012
18. febrúar byrja reiðnámskeið fyrir minna/meira vön börn og polla sem haldin verða í reiðhöllinni að Hamraenda 16-18. Kennsla verður
á tímabilinu frá kl. 11- 13:30 sex laugardaga í röð. Verð 7.000.- kr.
06.02.2012
Grímutölt Sörla verður haldið á laugardaginn kemur þann 11. febrúar að Sörlastöðum í Hafnarfirði kl. 14:00. Allir
klárir með búningana?
06.02.2012
12.febrúar - Reiðhöllin Víðidal kl.10:00-17:00 - síðasti skráningardagur miðvikudagurinn 8.febrúar
26.febrúar - Svaðastaðahöllin á Sauðárkróki kl.10:00-17:00 - síðasti skráningardagur miðvikudagurinn 22.febrúar
Vinsamlegast sendið skráningu á netfangið berglind@init.is
06.02.2012
Sigurbjörn Bárðarson verður með fyrirlestur í veislusal Gusts um undirbúning/þjálfun fyrir keppni 14.feb. nk. kl 19:30. Sigurbjörn hefur
gríðarlega víðtæka þekkingu og verður án efa mjög fróðlegt að hlusta á meistarann
06.02.2012
Næstu fimm vikur verður boðið upp á hestastrætó á þriðjudögum niður í Glaðheima endurgjaldslaust fyrir Gustara.
Farið verður á þriðjudögum frá Kjóavöllum niður í reiðhöllina okkar í Glaðheimum og til baka einum og
hálfum tíma síðar.
Strætóbílstjórinn heitir Kjartan er með gsm 867-4333, félagar panta pláss í síðasta lagi á mánudegi hjá
Kjartani. Lágmark er þrír hestar annars fellur ferðin niður.
Stoppustöðinn er á móts við hús Björgvins dýralæknis að Hamraenda.
06.02.2012
Laugardaginn 3. mars verður haldið Ís-landsmót á Svínavatni í A-Hún.
Keppt verður í A og B flokki og opnum flokki í tölti.
06.02.2012
Hestamannafélagið Fákur boðar til fundar nk. mánudag, 6. febrúar kl. 18:30 í félagsheimili Fáks, um breytingu á álagningu
fasteignagjalda á hesthúsum í Reykjavík.
02.02.2012
Þá er komið að fyrsta móti Meistaradeildar í hestaíþróttum en það
hefst í kvöld klukkan 19:00 í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli. Eins og flestir vita átti mótið að fara fram á fimmtudag fyrir viku en var
fresta vegna veðurs.
01.02.2012
Hestamannafélagið Léttir heldur stórsýninguna Fáka og fjör 2012 þann 14. apríl n.k. í Reiðhöllinni Akureyri.
01.02.2012
Eins og undanfarin ár verður sýnt beint frá Meistaradeildinni í Ölfushöllinni í vetur. Fyrsta mótið fer fram nú á
fimmtudaginn klukkan 19:00 en þá verður keppt í fjórgangi.