16.04.2019
Jóhann Rúnar Skúlason, margfaldur heimsmeistari í tölti, mætir í töltið á "Þeir allra sterkustu". Jói er margfaldur heimsmeistari í tölti og nú er bara að sjá hvaða gæðing hann teflir til leiks en hann er ekki vanur að mæta nema til að sigra.
16.04.2019
Hæst dæmdi stóðhestur heims Þráinn frá Flagbjarnarholti mætir á „Þeir allra sterkustu“.
Margir bíða spenntir eftir að sjá Þráinn sunnan heiða en hann setti heimsmet sl. sumar þegar hann hlaut 8,95 í aðaleinkunn í kynbótadómi. Þráinn er undan Þyrlu frá Ragnheiðarstöðum og Álfi frá Selfossi og er einn af þeim fjölmörgu súperhestum sem eru í pottinum í stóðhestaveltunni til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum.
15.04.2019
Í stóðhestaveltunni til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum eru u.þ.b. 100 tollar undir hátt dæmda stóðhesta. Sala á umslögum í stóðhestaveltunni fer fram á „Þeir allra sterkustu“ og kostar hvert umslag 35.000 kr., girðingagjald er ekki innifalið. Allir sem kaupa umslag fá toll undir fyrstu verðlauna stóðhest og styrkja um leið landsliðið.
13.04.2019
Í stóðhestaveltunni til styrktar landsliðs Íslands í hestaíþróttum eru u.þ.b. 100 tollar undir hátt dæmda stóðhesta. Sala á umslögum í stóðhestaveltunni fer fram á „Þeir allra sterkustu“ og kostar hvert umslag 35.000 kr., girðingagjald er ekki innifalið.
12.04.2019
Hestagullið Katla frá Hemlu mætir í sína fyrstu töltkeppni á „Þeir allra sterkustu“. Þar mætir hún engum öðrum en Konserti frá Hofi sem óþarft er að kynna, ásamt fjórum öðrum sterkum tölturum sem ríða til úrslita. Ekki verður riðin forkeppni.
11.04.2019
Enn bætast stór nöfn í pottinn í stóðhestaveltu landsliðsnefndar LH til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum.
Sala á umslögum í stóðhestaveltunni fer fram á „Þeir allra sterkustu“. Forsala aðgöngumiða er í Líflandi í Reykjavík og Borgarnesi og hjá Baldvini og Þorvaldi á Selfossi. Mætum öll og tryggjum okkur toll undir einn af vinsælustu stóðhestum landsins.
11.04.2019
Nýlega keyptu stjórnir hestamannafélaganna Dreyra, Geysis og Snæfellings aðgang að myndefni landsmóta á WorldFeng fyrir alla sína félagsmenn.
10.04.2019
Forsala aðgöngumiða á „Þeir allra sterkustu“ fer fram í verslun Líflands, Lynghálsi 3 í Reykjavík og hjá Baldvini og Þorvaldi á Selfossi. Miðaverð er 3.500 kr.
09.04.2019
Eigendur margra af vinsælustu stóðhestum landsins hafa gefið toll í stóðhestaveltuna til stuðnings landsliðs Íslands í hestaíþróttum. Þú kaupir umslag á kr. 35.000 og í umslaginu er tollur undir stóðhest með háan kynbótadóm.
08.04.2019
Olil Amble hefur verið tekin inn í landsliðshóp Íslands í hestaíþróttum.
Olil á langan keppnisferil að baki og hefur margoft tekið þátt í heimsmeistaramótum og Norðurlandamótum auk þess að hafa hlotið nokkrum sinnum Íslandsmeistaratitla.