08.05.2009
Það var ekki troðfullt út úr dyrum á fundum LH um framtíð LH og Landsmóta sem haldnir voru nú í vikunni. Um fimmtán manns
mættu á hvorn fund. Báðir fundirnir voru hins vegar mjög ganglegir og þar fór fram frjó umræða um þessi mikilvægu
málefni.
08.05.2009
Stjórn LH samþykkti á stjórnarfundi 20. mars síðastliðinn að hefja nýskráningu Íslandsmeta í kappreiðum. Breytingin tekur
gildi frá og með síðustu áramótum, 2008/2009. Skilyrði fyrir staðfesingu á meti er að viðurkenndur rafrænn búnaður hafi
verið notaður þegar metið var sett og ræst út úr básum á kappreiðum þar sem farið er í öllu eftir núgildandi
lögum og reglum LH.
08.05.2009
Á Landsþingi LH 2008 voru samþykktar nokkrar breytingar á keppnisreglum sem heyra undir Lög og reglur LH. Keppnisnefnd hefur tekið helstu breytingarnar saman til
glöggvunar.
07.05.2009
Minnum á opinn fund um málefni LH og Landsmóts sem haldinn verður í Rangárhöllinni í kvöld, fimmtudag, klukkan 20-22. Til fundarins eru
boðuð hestamannafélögin á svæðinu austan Hellisheiðar að Lómagnúpi.
07.05.2009
Leiðari fyrir gæðingadómara er nú kominn á netið, ásamt sérstökum leiðara fyrir úrslitakeppni. Einnig hefur listi yfir virka
gæðingadómara verið uppfærður. Finna má umrætt efni undir hnappnum Keppnismál hér að ofan.
07.05.2009
Sunnlenskir kappar munu feta í slóð forfeðranna og ríða um Suðurland, frá Höfn í Hornafirði vestur fyrir Selfoss — án
þess að ríða yfir nokkra brú! Forsprakki hópsins er Hermann Árnason á Heiði í Mýrdal.
07.05.2009
Ný heimasíða hefur verið sett upp fyrir Fjórðungsmót á Vesturlandi, sem haldið verður á Kaldármelum fyrstu helgina í
júlí. Á síðunni er að finna upplýsingar um þátttökurétt, skráningar, keppnisgreinar, gistimöguleika og fleira. Til
að fara á síðuna þá smelltu HÉR.
06.05.2009
Hinn þekkti hestamaður Bruno Podlech í Þýskalandi lést í morgun. Banamein hans var krabbamein. Bruno varð fyrst kunnur íslenskum
hestamönnum þegar hann varð Evrópumeistari í tölti á Stjarna frá Svignaskarði á EM 1972 í St. Moritz í Sviss.
06.05.2009
Haraldur Þórarinsson, formaður LH, hefur lagt til að öryggisnefnd LH boði forsvarsmenn hestavöruverslana og tryggingarfélaga á fund um
gæðavottun og öryggisstaðla á reiðtygjum.
06.05.2009
Minnum á opinn fund um málefni LH og Landsmóts sem haldinn verður í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í kvöld,
miðvikudag, klukkan 20-22 í fundarsal ÍSÍ. Til fundarins eru boðuð hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu og Máni
í Keflavík.