26.08.2010
Rétt í þessu var keppni í slaktaumatölti að hefjast á Íslandsmóti. Mikið af góðum hestum og knöpum eru
skráð til leiks og búast má við mörgum glæsisýningum.
26.08.2010
Forkeppni í fjórgangi er lokið.
Mette Manseth er efst með einkunnina 7,37, önnur er Hulda Gústafsdóttir (7,27), í 3. til 4. sæti eru Eyjólfur Þorsteinsson og Snorri Dal (7,20)
í 5. – 6. sæti eru Eyjólfur Þorsteinsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir með 7,17.
26.08.2010
Mikið blíðviðri er í Hafnarfirði þessa stundina og aðstæður til keppni er frábær, keppnisvellir og hestakostur er mjög
góður.
26.08.2010
Mette og Happadís í efsta sæti með einkunina 7,37 þegar 49 keppendur hafa lokið forkeppni í fjórgangi.
Hulda Gústafsdóttir er í önnur (7,27) og Eyjólfur Þorsteinsson er þriðji (7,20). Tólf knapar eiga enn eftir að keppa og staðan getur
því enn breyst.
26.08.2010
Eyjólfur Þorsteinsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir standa efst í fjórgangi með einkunina 7,17 þegar 28 keppendur hafa lokið keppni kl
11:00.
26.08.2010
Í dag fer fram forkeppni í fjórgangi, tölt T2 og gæðingaskeiði fram á Sörlavöllum. Hér eru uppfærðir ráslistar og
dagskrá. Talsvert hefur verið um afskráningar, svo sumir keppendur færast til í dagskránni. Ráslistarnir verða hengdir upp í
knapahesthúsum og á Sörlastöðum.
26.08.2010
Íslandsmótið hófst í dag með keppni í fimmgangi í blíðskaparveðri á Sörlavöllum. Mikið var um tilþrif
á frábæru keppnissvæði Sörlamanna. Efstu fimm fara beint í A-úrslit á laugardag. Í B-úrslitum á föstudag þarf
Viðar að velja annan hestinn sinn og þar af leiðandi verða sjö hestar í B-úrslitum þar sem þrír eru jafnir í 11-13 sæti.
Úrslit eftir forkeppni í fimmgangi eru eftirfarandi.
24.08.2010
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekskvennasjóð Íslandsbanka og ÍSÍ. Tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið
á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri.
24.08.2010
Íslandsmót fullorðinna verður haldið á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 25.ágúst til 28.ágúst. Hér
má sjá ráslistana fyrir mótið.
24.08.2010
Landssamband hestamannafélaga hefur í samvinnu við Reykjavíkurborg komið upp glæsilegri ljósmyndasýningu í
Hljómskálagarðinum.