05.02.2010
Heimildamyndin Kraftur - síðasti spretturinn hefur hlotið tilnefningu til Eddu verðlauna í flokknum heimildamynd ársins 2010. Auk hennar eru tilnefndar Alfreð
Elíasson og Loftleiðir, Draumalandið, Hrunið og Sólskinsdrengurinn.
05.02.2010
Magnús Sigurðsson læknir og hestamaður færði Háskólanum á Hólum og Sögusetri íslenska hestsins veglega gjöf við
athöfn í dag. Magnús sem komin er yfir áttrætt hefur í gegnum tíðina safnað orðum og orðatiltækjum sem tengjast hestum og
hestamennsku.
04.02.2010
Á föstudagskvöldið verður Grímutölt í Reiðhöllinni og hefst það kl. 20:30. Keppnisformið er hægt tölt og
fegurðartölt. Keppt verður í tveimur aldursflokkum og tveimur styrkleikaflokkum innan hvers aldursflokks (ef næg þátttaka næst).
03.02.2010
Félag tamningamanna mun í samstarfi við unga og efnilega reiðkennara standa fyrir sýnikennslu í reiðhöllinni í Borgarnesi þriðjudaginn
9.febrúar kl.20.
03.02.2010
Þorsteinn „okkar“ Björnsson Reiðkennari á Hólum verður með reiðnámskeið í Top Reiter höllinni 12-14 febrúar. Tveir
nemendur eru saman í hóp og fá þeir 5 kennslustundir. Kennt verður frá föstudagskvöldi til sunnudags. Verð er aðeins 12.500 kr. fyrir
Léttisfélaga. Skráning og nánari upplýsingar eru hjá Friðrik í síma 896-5309 fyrir miðvikudaginn 10. febrúar.
03.02.2010
Fyrir keppnistímabilið 2010 gilda eftirfarandi reglur um innanhússmót:
02.02.2010
KEA-mótaröðin 2010 mun hefjast þann 11. febrúar n.k. í Top Reiterhöllinni. Keppt verður í einum flokki og hefst hún á
tölti.
01.02.2010
Meistaradeild UMFÍ og LH verður haldin í apríl 2010 í Rangárhöllinni. Mótadagar eru eftirfarandi:
01.02.2010
Landsliðsnefnd LH vill vekja athygli á þeim ístöltum sem haldin verða í vetur til styrktar íslenska landsliðinu í
hestaíþróttum.
01.02.2010
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna í samvinnu við aðra æskulýðsfulltrúa innan FEIF mun í sumar gefa íslenskum unglingum kost
á að heimsækja önnur aðildarlönd FEIF. Fyrirkomulagið verður þannig að unglingar á aldrinum 14 – 17 ára verða í 1
– 2 vikur hjá fjölskyldum sem eiga íslenska hesta og taka þátt í þeirra daglegu störfum. Þetta er tækifæri fyrir
áhugasama krakka að kynnast hestamennskunni á erlendri grund og mynda vinatengsl.