19.01.2010
Sunnudaginn 24 janúar nk. mun Félag tamningamanna, í samvinnu við hestamannafélagið Sörla, standa fyrir kennslusýningu í reiðhöllinni
í Sörla kl. 16:00.
19.01.2010
Að beiðni HÍDÍ hefur nú verið sett á heimasíðuna FIPO leiðarinn 2009, FIPO reglurnar 2009 og skemamynd vegna útreikninga á einkunn
í fimmgangi. Upplýsingarnar er að finna undir KEPPNISMÁL - ÍÞRÓTTADÓMARAR - FIPO LEIÐARI 2009 ENSKA.
Einnig hægt að smella hér.
19.01.2010
Aðalfundur HÍDÍ, hestaíþróttadómarafélags Íslands, var haldinn í Íþróttamiðstöðinni í
Laugardal mánudaginn 18.janúar 2010. 32 félagsmenn sóttu fundinn sem er mjög ánægjulegt. En það er nálægt 27 % allra
félagsmanna.
15.01.2010
Nú er að finna á heimsíðunni upplýsingar og kort af reiðleiðum um hálendi Íslands. Kortin eru fimm talsins og skiptast í suður-,
austur-, norður- og vesturhálendi auk yfirlitskorts.
15.01.2010
Sýnikennslan "Ungir á uppleið" sem stóð til að færi fram 19.janúar nk. í reiðhöll Borgarnes hefur verið frestað til 9.feb. nk.
vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
14.01.2010
Verum hagsýn í kreppunni! Sala á notuðum reiðfatnaði verður í félagsheimili Fáks sunnudaginn 17.janúar 2010.
Losið úr skápum og hirslum reiðföt sem þið eruð hætt að nota og fáið fé fyrir eða komið og kaupið ykkur
reiðföt á góðu verði!
14.01.2010
Stóðhestadagur verður haldinn í Rangárhöllinni á Hellu öðru sinni laugardaginn 3. apríl nk. og rétt fyrir áhugasama
hrossaræktendur að taka daginn strax frá! Dagurinn var haldinn í fyrsta skipti í fyrra og tókst gríðarlega vel, en þá kom fram
fjöldi stóðhesta auk heiðurshestsins Kraflars frá Miðsitju sem þar sást í reið í síðasta sinn.
13.01.2010
Nýárstölt Líflands og Léttis verður haldið í Top Reiterhöllinni föstudaginn 15. janúar klukkan 20:00. Skráning er á
staðnum og hefst klukkan 19:00.
13.01.2010
Langstærsti reiðslóðabanki landsins hefur verið aukinn og endurbættur. Þar eru nú 800 reiðslóðir. Viðbæturnar eru einkum úr
Dölum og Þingeyjarsýslum, Árnessýslu og Rangárvallasýslu. Aðgangur að bankanum er ókeypis á www.jonas.is.
11.01.2010
Aðalfundur HÍDÍ verður mánudaginn 18.janúar 2010 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fundurinn hefst
stundvíslega kl 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Boðið verður uppá kaffi og kleinur.