24.11.2008
FEIF hefur óskað eftir að fá peninga úr sjóði sem heyrir undir svokallaða Ástu Möller nefnd. Samtökin eru rekin með tapi og hafa ekki aðrar tekjur en skatt frá aðildarfélögum. Jón Albert Sigurbjörnsson, varaformaður FEIF, segir að það sé góð fjárfesting fyrir Ísland að styrkja FEIF.
22.11.2008
Nú hyllir undir að allir meðlimir í FEIF fái frían aðang að WorldFeng. Stefnt er að því að opnað verði fyrir áskriftina 1. mars á næsta ári. Jens Iversen, forseti FEIF, er bjartsýnn á að samkomulag sé að nást milli FEIF og Bændasamtaka Íslands.
21.11.2008
Það er kraftur í félagsstarfi Geysis. Má að líkum þakka þennan endurnýjaða þrótt tveimur reiðhöllum á félagssvæðinu, sem gefa margþætta möguleika. Nýlega var haldinn umfangsmikill flóamarkaður í Rangárhöllinni sem vakti mikla athygli.
21.11.2008
Ekki er öll von úti að hestamenn geti fengið hesthúspláss á kristilegu verði. Helena Ómarsdóttir auglýsir pláss til leigu í Heimsendahverfi á 21 þúsund krónur með heyi, spæni og hirðingu.
20.11.2008
Endurmenntun Landbúnaðar- háskóla Íslands sendir góða kveðju um gleðilegt ár með þökkum fyrir samstarfið og samverustundirnar á liðnum árum! Við minnum á námskeiðin okkar sem nú fara að hefjast hvert af öðru innan allra fagsviða skólans, sjá www.lbhi.is undir Stök námskeið.
20.11.2008
Þriggja helga námskeiðsröð sem
verður í boði á vorönn 2009 með Jakobi Sigurðssyni í samvinnu við Félag hrossabænda.
20.11.2008
Þjóðverjar eru langfjölmennastir þjóða í FEIF, meira en helmingi stærri en Ísland. Þýsku Íslandshestasamtökin, IPZV, telja nú 24 þúsund félaga. Í Landssambandi hestamannafélaga, LH, eru nú skráðir 11.379 félagar.
20.11.2008
Við eru bjartsýn. Það eru allir sammála um að það sé aldrei meiri ástæða en einmitt nú að bæta í frekar en hitt, segir Víkingur Gunnarsson, forstöðumaður hrossabrautar á Hólaskóla. Stefnt er að því að skólinn verði að sjálfseignarstofnun á næsta ári.
20.11.2008
Það verður enginn niðurskurður á hrossabraut Hólaskóla í vetur, segir Skúli Skúlason, rektor Háskólans á Hólum. Feykir.is greindi frá því nýlega að 115 milljónir króna vantaði upp á að síðustu áætlanir varðandi skólann næðu fram að ganga.
20.11.2008
Hinn frækni stóðhestur Rökkvi frá Hárlaugsstöðum er á leið úr landi. Hann fer til eigenda sinna í Svíþjóð, sem er Göran Montan og fjölskylda. Rökkvi hefur verið í fremstu röð stóðhesta og keppnishesta á Íslandi síðastliðin ár.