09.03.2009
Hans Kjerúlf og stóðhesturinn Sigur frá Hólabaki voru maður og hestur Ís-Landsmótsins á Svínavatni, sem fram fór um helgina.
Þeir sigruðu tvöfalt, bæði í B flokki og tölti og fengu þar með tvö hundruð þúsund krónur í verðlaun. Vignir
Siggeirsson, bóndi á Hemlu, sló í gegn í A flokki á heimaræktuðum gæðiningi, Ómi frá Hemlu. Einmuna blíða var
á Svínavatni allan mótsdaginn og mótið gekk afar vel fyrir sig.
09.03.2009
Árshátíðamót Mána fór fram laugardaginn 7.mars. Mjög góð þátttaka var á mótinu þó að
mjög kalt væri í veðri. Reiðhöllin var notuð til upphitunar sem var góður kostur í kuldanum. Dómari var Jóhannes
Ottósson.
09.03.2009
Annað mótið í vetrarmótaröð Keiluhallarinnar og Gusts fór fram í Glaðheimum í gær. Um er að ræða þriggja
móta syrpu þar sem þátttakendur safna stigum og í lok þriðja mótsins verða samanlagðir sigurvegarar svo verðlaunaðir
sérstaklega. Stigakeppnin er mjög spennandi og jafnt á knöpum í mörgum flokkum, einn knapi hefur þó afgerandi forystu í sínum flokki, en
það er Matthías Kjartansson í ungmennaflokki sem hefur sigrað á báðum mótunum hingað til.
06.03.2009
Þá er spennandi keppni í slaktaumatölti í MD VÍS lokið. Eftir forkeppni stóð efstur Eyjólfur Þorsteinsson, Málningu, á
Ósk frá Þingnesi með einkunnina 7,37. Næst á eftir honum kom Bylgja Gauksdóttir, Líflandi, á Ösp frá Enni með einkunnina
7,30, og þriðji var Sigurður V. Matthíasson, Málningu, á Hyl frá Stóra-Hofi með einkunnina 7,17.
06.03.2009
Ís-Landsmótið á Svínavatni verður trúlega stærsta hestamannamót ársins norðan heiða til margra ára. Skráningar eru
rúmlega 230. Fjöldinn af stórstjörnum eru á meðal þátttakenda eins og sjá má á meðfylgjandi ráslista.
Veðurspáin er hagstæð.
06.03.2009
Árshátíðarmót Mána verður haldið laugardaginn 7. mars kl 13.00. Ef veður er mjög slæmt færist mótið inn í
reiðhöll. . . Pollar keppa í reiðhöllinni.
05.03.2009
Hestar voru tamdir af manninum mun fyrr en áður var talið samkvæmt breskum fornleifafræðingum. Þeir hafa fundið merki þess að hross hafi verið
notuð á menningarsvæði í Kazakhstan fyrir um 5.500 árum síðan.
05.03.2009
Komin er á vefinn ný handbók um Kappa og Sportfeng. Hana má finna á pdf. formi undir hnappnum “Keppnismál” hér á lhhestar.is:
Ný handbók SportFengs og Kappa 2009.
05.03.2009
Keppendur, eigendur hesta og knapar þeirra, eru ábyrgir fyrir því að þeir séu rétt skráðir í félagatal LH og þar
með Sportfeng. Allnokkrir hestamenn eru skráðir í tvö eða fleiri hestamannafélög. Þeir verða sjálfir að láta vita fyrir
hvaða félag þeir ætla að keppa áður en keppnistímabilið hefst. Að öðrum kosti er undir hælinn lagt hvaða félag
verður fyrir valinu í mótsskrá.
05.03.2009
Það var sannkölluð veisla sem var boðið uppá í töltkeppni KS-deildar í gærkveldi og þau allra sterkustu úrslit sem sést
hafa í Svaðastaðahöllinni. Bjarni og Komma hikstuðu aðeins í forkeppninni, en voru komin í gírinn í B-úrslitum.