25.05.2009
Landsliðseinvaldur íslenska landsliðsins í hestaíþróttum og landsliðsnefnd LH boðar til opins fundar um málefni landsliðsins. Fundurinn
fer fram þriðjudaginn 26. maí í reiðhöllinni Víðidal kl. 18:00.
25.05.2009
Fimmtíu og einn nemandi var brauskráður úr hestafræðideild Hólaskóla síðastliðinn föstudag. Morgunblaðsskeifan er veitt fyrir
besta samanlagða árangur í reiðmennskunámskeiðum vetrarins á 1. ári. Skeifuhafinn í ár er Ragnhildur Haraldsdóttir. Ragnhildur
fékk einnig reiðmennskuverðlaun FT. Hestur Ragnhildar er Villi frá Hvítanesi.
25.05.2009
Íþróttamót Geysis fór fram á Gaddstaðaflötum um helgina. Meðfylgjandi eru heildar úrslit mótsins.
25.05.2009
Ungi maðurinn sem lést eftir vinnuslys í Garðinum í síðustu viku hét Kristján Falur Hlynsson, 18 ára. Hann var hestamaður af
lífi og sál og stundaði hestamennskuna ásamt fjölskyldu sinni hjá Mána í Keflavík. Öllum viðburðum hjá Mána hefur
verið frestað um óákveðinn tíma.
21.05.2009
Skrifstofa LH verður lokuð föstudaginn 22. maí.
Hægt er að hringja í starfsmann s: 849 8088 ef nauðsyn krefur.
Kveðja
Starfsmenn LH
21.05.2009
Hermann Árnason og félagar unnu frækilegt afrek í dag, eða öllu heldur síðastliðna nótt, er þeir sundriðu Jökulsá
á Breiðamerkursandi. Áin hefur ekki verið sundriðin áður í manna minnum, allavega ekki eftir að farvegur hennar komst í þá mynd sem
hann er nú. Yfirleitt var farið fyrir hana á jökli, eða hestar voru teymdir yfir á ferjubát.
21.05.2009
Fyrstu skeiðleikar Skeiðfélagsins fóru fram á félagssvæði Sleipnis á Selfossi í gærkvöldi. Sigurbjörn Bárðarson
vann gull og silfur í 250 m skeiði og Ragnar Tómasson jr. bar sigur úr býtum í 100 m skeiði. Það var hins vegar Þorkell Bjarnason sem kom
fyrstur mark í 150 m skeiði á Veru frá Þóroddsstöðum.
19.05.2009
Nú er verið að taka niður skráningar á kynbótasýninguna á Gaddstaðaflötum við Hellu. Tekið er við skráningum
í síma 480-1800. Síðasti skráningardagur er á morgun miðvikudaginn 20. maí. Einnig er á auðveldan hátt hægt að
skrá hross í kynbótadóm á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands http://www.bssl.is/ þar er
einnig að finna ýmsan fróðleik um kynbótasýningar.
Búnaðarsamband Suðurlands
19.05.2009
Hollaröðun fyrir kynbótasýninguna á Sörlastöðum í næstu viku er að finna á heimasíðu Búnaðarsambands
Suðurlands http://www.bssl.is/ en hún var uppfærð í dag vegna smávægilegra breytinga. Sýningin hefst
stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 25. maí nk.
Búnaðarsamband Suðurlands
19.05.2009
Opið World-Ranking Íþróttamót Sörla
Verður haldið á Sörlastöðum 23. og 24. maí. Allir flokkar í boði. Skráning er á miðvikudaginn 20. maí milli klukkan 19:00 og
21:00
Allir velkomnir.
Mótanefnd Sörla <http://www.sorli.is/GetMynd.asp?aID=1128>