17.08.2009
Opið stórmót hestamanna verður haldið á Melgerðismelum 21.-23. ágúst. Keppt verður í A- og B-flokki, barna- unglinga- og
ungmennaflokki og verður forkeppnin með þrjá inni á vellinum í einu.
14.08.2009
Afsökunarbeiðni
Frá barnæsku hefur hestamennskan veitt mér ómælda gleði. Þar hef ég eignast flesta af mínum bestu vinum.
Í hestamennskunni liggur mitt ævistarf.
13.08.2009
Opið Íþróttamót Þyts var haldið 7. og 8. ágúst. Mótið gekk vel í alla staði og aldrei hefur verið eins mikil
skráning á íþróttamóti hjá Þyt eins og var um helgina. Mótanefnd vonast til þess að sjá sem flesta að ári.
13.08.2009
Sölusýning hrossa verður á Melgerðismelum í tengslum við stórmót helgina 21.-23. ágúst. Skráning með upplýsingum um
nafn, lit, aldur, ættir, lýsingu og verð sendist á tölvupóstfang fellshlid@nett.is í seinasta lagi þriðjudaginn 18. ágúst.
11.08.2009
Jens Einarsson:
Árangur Íslendinga á HM09 er allgóður, þótt hann sé ekki jafn glæsilegur og stundum áður. Ef eingöngu er tekið
Sportið, þá er staðan sú að í fullorðinsflokki unnust fjögur gull, fjögur silfur og eitt brons. Eftirsóttustu verðlaunin,
Tölthornið, kom í hlut Íslendinga.
11.08.2009
21.-23. ágúst verður haldið mikið mót á Melgerðismelum. Þar verður gæðingakeppni í öllum flokkum, töltkeppni og
kappreiðar með öllum skeiðgreinum og 300 m stökki og brokki. Peningaverðlaun verða í töltkeppni og kappreiðum.
10.08.2009
Jóhann R. Skúlason og Hvinur frá Holtsmúla eru heimsmeistarar í tölti. Jóhann og Hvinur stóðu efstir eftir forkeppnina með 8,43 í
einkunn. Í A-úrslitum bættu þeir um betur, hlutu hvorki meira né minna en 8,78 í einkunn og stóðu þar með langefstir. Þar með
var það ljóst að tölthornið var á leið heim aftur eftir stutta dvöl í Noregi.
10.08.2009
Þjóðverjarnir Lena Trappe og Vaskur von Lindenhof eru öruggir heimsmeistarar í fjórgangi. Lena og Vaskur stóðu efst eftir forkeppnina og héldu
yfirburðum sínum í A-úrslitunum sem skilaði þeim heimsmeistaratitlinum.
10.08.2009
Stian Petersen og Tindur frá Varmalæk eru heimsmeistara í fimmgangi 2009 en þeir keppa fyrir Noreg. Stian og Tindur fóru lengri leiðina að titlinum en
þeir enduðu í 9.sæti eftir forkeppnina, sigruðu B-úrslitin, mættu feikna sterkir til leiks í A-úrslitum og uppskáru
heimsmeistaratitilinn.
10.08.2009
Danmörk náði gullinu í 100m fljúgandi skeiði á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins. Það var Tania H. Olsen og Sólon frá
Strö sem náðu besta tímanum, 7.44 sek. Jafnir í 2.-3. sæti, á tímanum 7.47 sek, voru Íslendingarnir Bergþór Eggertsson á
Lótus og Valdimar Bergstað á Oríon.