Íslenska landsliðið átti æfingatíma á keppnisvöllunum í dag og nýttu flestir knaparnir sér þann tíma. Menn riðu
ýmist prógramm, fet nokkra hringi eða teymdu hestana á hjóli eftir skeiðbrautinni.
Allir knapar íslenska landsliðsins ásamt hestum eru mættir á mótsstað í Brunnadern. Flestir knaparnir fóru á hrossin sín
í fyrsta skipti í dag og eru þeir ánægðir með hvernig hrossin koma undan flutningi.