16.07.2009
Fyrsta grein á Íslandsmótinu í hestaíþróttum var fjórgangur. Það er landsliðsknapinn Snorri Dal á Oddi frá
Hvolsvelli sem leiðir keppni með einkunnina 7,40.
16.07.2009
Íslandsmót fullorðinna 2009 er hafið á Akureyri. Stefnt er að því að færa inn einkunnir eins fljótt og auðið er inn á
heimasíðu Léttis www.lettir.is.
16.07.2009
12. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki um Verslunarmannahelgina og hefst 31.júlí. Þar verður m.a. keppt í
hestaíþróttum og er sú keppni opin öllum krökkum og unglingum á aldrinum 11-18 ára.
15.07.2009
Íslandsmót í hestaíþróttum hefst í fyrramálið klukkan 8:30 með knapafundi. Fyrsta grein mótsins er fjórgangur og hefst
keppni þar klukkan 10:00.
14.07.2009
Vegna fjölda áskoranna höfum við ákveðið að breyta dagsskrá mótsins á þá leið að gæðingaskeið
verður fært frá laugardegi yfir á föstudag klukkan 19:00.
14.07.2009
Keppendur á Íslandsmóti fullorðinna athugið að hægt verður að prófa
startbásana sem notaðir verða í kappreiðunum á miðvikudaginn n.k frá kl 17:00 - 20:00 á Hlíðarholtsvelli.
14.07.2009
Lokahóf Íslandsmótsins verður í Top Reiter höllinni á Akureyri laugardaginn 18. júlí.
13.07.2009
26. Landsmóti UMFÍ fór fram síðustu helgi í blíðskaparveðri á nýjum keppnisvelli Léttis á Akureyri. Leikar
fóru svo að lið ÍBA vann liðakeppnina með 99 stigum. Sigurður Sigurðarson í liði HSK var sigursæll og vann gull í fjórgangi,
tölti, fljúgandi skeiði og hestadómum ásamt konu sinni, Sigríði Þórðardóttur. Sjá meðfylgjandi úrslit.
13.07.2009
Stóðhesturinn Gígjar frá Auðsholtshjáleigu verður til afnota seinna gangmál að Auðsholtshjáleigu frá miðvikudeginum
21.júlí.
13.07.2009
Sumarsmellur Harðar fór fram föstudaginn 10.júlí og laugardaginn 11.júlí í Mosfellsbæ í blíðskaparveðri.
Þátttaka var góð og sjá mátti margar góðar sýningar. Meðfylgjandi eru úrslitin frá mótinu.