18.07.2009
Það var landsliðsknapinn Teitur Árnason á Veigari frá Varmalæk sem sigraði 150m skeiðið á Íslandsmótinu. Þeir
fór á tímanum 14,97 og er þetta annað árið í röð sem þeir félagar hampa titlinum.
18.07.2009
Það var Bjarni Jónasson á Kommu frá Garði sem sigraði B-úrslitin í tölti í morgun. Þau hlutu í aðaleinkunn 8,11.
18.07.2009
Það voru þeir Sigurður V Matthíasson á Birtingi frá Selá og Sigurður Sigurðarson á Æsu frá Flekkudal sem sigruðu
B-úrslitin í fimmgangi. Þeir voru hnífjafnir með einkunnina 7,21.
18.07.2009
Það var Lena Zielinski á Golu frá Þjórsárbakka sem sigraði B-úrslitin í fjórgangi í morgun. Lena hlaut 7,50 í
einkunn.
18.07.2009
Keppni í gæðingaskeiði fór fram í kvöld á Íslandsmótinu í hestaíþróttum. Sigurður Sigurðarson á
Freyði frá Hafsteinsstöðum bar sigur úr býtum með einkunnina 8,38.
18.07.2009
Forkeppnin í tölti á Íslandsmótinu í hestaíþróttum var æsispennandi og eru það Halldór Guðjónsson og
Nátthrafn frá Dallandi sem standa efstir með einkunnina 8,43.
17.07.2009
Keppni í fimmgangi á Íslandsmóti í hestaíþróttum er nýlokið. Efstur er landsliðknapinn Daníel Jónsson á
Tón frá Ólafsbergi með einkunnina 7,43.
17.07.2009
Einar Öder Magnússon landsliðseinvaldur hefur valið þriðja ungmennið í íslenska landsliðið sem fer á Heimsmeistaramótið
í Sviss.
16.07.2009
Síðasta grein fyrsta dags á Íslandsmótinu í hestaíþróttum var 100m skeið. Agnar Snorri Stefánsson bar sigur úr
býtum á Ester frá Hólum á tímanum 7,65 og var þar með fyrsti Íslandsmeistari mótsins krýndur.
16.07.2009
Í dag var keppt í slaktaumatölti á Íslandsmóti í hestaíþróttum. Það er Sigurður Sigurðarson á Herði
frá Eskiholti II sem leiðir keppnina með 7,90 í einkunn.