22.02.2010
Undirbúningur vegna mótsins gengur ágætlega og mikil og góð stemming í gangi. Það eina sem menn hafa áhyggjur af (aðallega
sunnan heiða) er hvort ísinn sé í lagi.
22.02.2010
Á fundi þann 16. febrúar fjallaði stjórn Hestamannafélagsins Sörla um val stjórnar LH á landsmótsstað fyrir árið 2012.
Mjög skiptar skoðanir eru innan stjórnar Sörla og meðal félagsmanna um hvort halda eigi landsmót á höfuðborgarsvæðinu.
19.02.2010
Undirbúningur Landsmóts 2010 er á fullu skriði enda að mörgu að huga þegar að svo viðamiklum viðburði kemur. Eftir áralangt
samstarf liggur Lífland ekki á liði sínu og í morgun var undirritaður samstarfssamningur á milli fyrirtækisins og Landsmóts.
19.02.2010
Menntamatrixulistar FEIF er nú að finna á heimasíðu LH. Hér til vinstri á forsíðunni er flipi sem heitir Matrixa FEIF og þar er hægt
skoða listana.
19.02.2010
Næstkomandi fimmtudag hefst annað kvöldið af fjórum í KEA mótaröðinni í Top Reiterhöllinni á Akureyri. Keppt verður í
fjórgangi og hefst keppnin klukkan 20:00 fimmtudaginn 25. febrúar. Húsið opnar kl. 19:30.
17.02.2010
Æskulýðsnefnd LH minnir áhugasama á að skila inn umsóknum á Youth Cup sem verður haldið 10.- 18. júlí nk. Mótið er
haldið í Kalo í Damörku. Útvegaðir verða hestar ef óskað er. Skilyrði fyrir þátttöku: Reynsla í hestamennsku,
enskukunnátta, keppnisreynsla í íþróttakeppni, sjálfstæði, geta unnið í hóp og reglusemi.
16.02.2010
Nú er komið að fyrra samræmingarnámskeiði HÍDÍ sem haldið verðursunnudaginn 21. feb. 2010 norðan heiða í
reiðhöllinni á Blönduósi. Námskeiðið hefst stundvíslega kl 9.00 árdegis og stendur til 17.00.
15.02.2010
Félag tamningamanna og Léttfeti minna Skagfirðinga og nærsveitarmenn á fróðlegan fund um fóðrun reiðhesta sem fram fer í
Tjarnarbæ í kvöld, mánudag kl. 20:30. Kaffiveitingar í boði félaganna.
15.02.2010
Næstu daga eiga gæðingadómarar LH von á mynddiski inn um bréfalúguna hjá sér vegna upprifjunarnámskeiða GDLH. Með diskinum
fylgja allar upplýsingar um hvernig skal standa að skilum á einkunum og hvenær námskeiðin eru haldin.
15.02.2010
Laugardaginn 13.febrúar var haldið Ísmót á Hrísatjörn við Dalvík. Þátttaka var mjög góð, en um 50 skráningar
voru í mótið, 41 í tölti og 10 í skeiði. Aðstæður á tjörninni voru frábærar, og veður hagstætt. Logn og um
frostmark. Þökkum við keppendum fyrir að halda tímasetningum, dómurum og öðrum starfsmönnum þökkum við einnig gott starf.