12.04.2011
Líflandsmót æskulýðsnefndar Fáks verður haldið á laugardaginn kemur, þann 16.apríl í Reiðhöllinni. Skráning
á mótið er í kvöld, mánudaginn 11.apríl, milli kl. 18 og 20 í Reiöhöllinni en einnig er tekið við skráningum í
símum 567 0100 og 567 2166, gegn greiðslu með kreditkorti, á sama tíma.
11.04.2011
3. Landsbankamótið (þrígangur) og það síðasta í vetrarmótaröð Sörla verður haldið um helgina á
Sörlastöðum. Mjög vinsælt og skemmtilegt mót og gaman að keppa og horfa á.
08.04.2011
Síðasta keppnin í Meistaradeildinni fór fram í gærkvöldi, fimmtudaginn 7.apríl. Þá var keppt í slaktaumatölti og
fljúgandi skeiði. Hér má sjá niðurstöður úr forkeppni og úrslitum.
08.04.2011
Sigurður Sigurðarson er sigurvegari Meistaradeildarinnar árið 2011. Hann stóð efstur með 58 stig en á hæla hans kom Sigurbjörn
Bárðarson með 56,5 stig. Þeir voru báðir í liði Lýsis og unnu því liðakeppnina með 345,5 stigum en næst kom lið
Árbakka/Norður-Götur með 312,5 stigum.
08.04.2011
Stóðhestaeigendur og velunnarar íslenska landsliðsins í hestaíþróttum hafa gefið eftirfarandi folatolla til styrktar landsliðsins. Folatollana
er hægt að kaupa af Landsliðsnefnd Landssambands hestamannafélaga, upplýsingar gefur Eysteinn Leifsson s: 896-5777.
08.04.2011
Athugið breytta dagskrá. Fræðslunámskeiðið um byggingardóma og sýningu hrossa í byggingardómi verður aðeins
laugardaginn 9. apríl. Ekki var næg þátttaka til að hafa það líka á sunnudaginn.
08.04.2011
Hægt verður að skrá í Opna Íþróttamót Mána sem fer fram 15-17 apríl fram yfir helgi. Tekið verður á
móti skráningum á netfangið mani@mani.is.
08.04.2011
Frestur til skráningar á ungfolasýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands í Ölfushöllinni er framlengdur til fimmtudagskvölds.
08.04.2011
Ákveðið hefur verið að halda nýdómara og landsdómaranámskeið í Gæðingadómum ef næg þáttaka
fæst lágmark 14 manns þurfa að skrá sig á námskeiðið.
07.04.2011
Nýtt í kortasjánni er að krækja (linkur) er beint á reiðleiðir í Dölum og Rangárþingi ytra þ.e. heimasíður
Glaðs og Geysis. Í kortasjánni eru Dala- og Rangárvallasýsla skyggðar, ef farið er með bendilinn á þær opnast gluggi,
þaðan er greið leið á reiðleiðir sem þar eru.