10.04.2013
Gæðingadómarafélag LH vill beina þeim tilmælum til hestamannafélaga/mótshaldara að þeir sæki um dómara til félagsins sem fyrst. Umsóknarform er að finna á vef LH.
10.04.2013
Stjórn og fræðslunefnd HÍDÍ vill minna mótshaldara á um að sækja um dómara að lágmarki 4 vikum fyrir mót svo hægt sé að auglýsa mótið til umsókna fyrir dómara inná heimasíðu félagsins og úthluta dómurum á mótin. Mikið af mótum eru á dagskrá í apríl, maí og júní (samkvæmt mótaskrá 2013) þar sem ekki hafa borist umsóknir um dómara á !!!
10.04.2013
Fyrirhugað er að halda nýdómaranámskeið vikuna 19.-25. ágúst í Mosfellsbæ. Námskeiðagjald verður 80.000 (birt með fyrirvara).
Skráning mun fara fram inn á www.hidi.is - og verður send út tilkynning á hestafréttamiðla um að opnað hafi verið fyrir skráningu en síðasti skráningardagur mun vera 1. ágúst.
10.04.2013
Vegna bilunar í skráningarkerfi í gær hefur skráning á Kvennatöltið verið framlengd til miðnættis í kvöld miðvikudag. Góð stemming er fyrir mótinu og skráningar þegar á annað hundrað, en enn er tækifæri fyrir konur til að taka þátt í þessum skemmtilega viðburði. Keppt er í fjórum flokkum þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
10.04.2013
Kortasjá LH: nú eru komnar inn í Kortasjána reiðleiðir á Tröllaskaga og í Eyjafirði. Skráðar reiðleiðir í Kortasjánni eru 1.056 talsins, samtals 8.525,46 km.
09.04.2013
Í kvöld á Sörlastöðum! Rúna Einarsdóttir Dagur í lífi Freys. Í kvöld, 9. apríl, verður engin önnur en Rúna Einarsdóttir með fyrirlestur á Sörlastöðum. Rúna varð eins og flestir vita heimsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum árið 2009 á Frey vom Nordsternhof, og hafa þau unnið til fjölda verðlauna gegnum árin.
09.04.2013
Skráning er hafin á Kvennatöltið sem fer fram í reiðhöllinni í Víðidal nk. laugardag, 13. apríl. Skráning fer eingöngu fram í gegnum www.sportfengur.com gegn greiðslu með greiðslukorti. Á mótinu er boðið upp á keppni í fjórum styrkleikaflokkum svo allar konur ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
09.04.2013
Töltfimi var kynnt til sögunnar síðastliðið haust sem hugsanleg ný keppnisgrein í hestaíþróttum. Hún byggir á hugmyndum Reynis heitins Aðalsteinssonar um keppni í tölti þar sem þjálfun, undirbúningur og reiðmennska eru undir smásjá. Hópur áhugasamra hestamanna hefur unnið óformlega að mótun leiðara fyrir Töltfimina undanfarna mánuði.
08.04.2013
Skv. lögum og reglum LH ber keppnisnefnd að gefa út lágmörk fyrir Íslandsmót á hverju ári, 3 mánuðum fyrir Íslandsmót.