Íslandsmót fullorðinna

Íslandsmót fullorðina í hestaíþróttum verður haldið á Brávöllum, Selfossi, dagana 13.-16.júlí n.k. Skránig fer fram í gegnum síma og einnig með tölvupósti á netfangið  islandsmot@gmail.com

Íslandsmót yngri flokka

Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna 2011 fer fram á Mánagrund, félagssvæði hestamannafélagsins Mána dagana 21.-24.júlí. Skráning hefst 4.júlí og fer fram í gegnum tölvupóst og skal senda skráningu á mani@mani.is.

Skrifstofa LH lokuð 4.júlí

Skrifstofa Landssambands hestamannafélaga verður lokuð mánudaginn 4.júlí.

World Record at the „Islandpferde Reithof Piber“.

Catherine Gratzl starts with her mare Blökk frá Kambi a 11-year-old daughter of Thorri frá Þúfu, out of the starting box at the Islandpferde Reithof Piber and reached an amazing time of 13.47 seconds over 150 meters.

Knapafundir á sunnudegi

Knapafundur fyrir börn og unglinga verður haldin sunnudaginn 26.júní kl.10 í veitingatjaldi. Knapafundur fyrir ungmenni og fullorðna verður haldin sunnudaginn 26.júní kl.20 í veitingatjaldi.

Tilkynning til eigenda hrossa á LM

Aðeins hefur borið á fyrstu einkennum hófsperru í hrossum á landsmótssvæðinu. Eigendum er ráðlagt að takmarka aðgang hrossanna að beit en gefa hey þess í stað til að lágmarka snöggar fóðurbreytingar. Nóg af heyi  er tiltækt á svæðinu.

Fréttir af Landsmóti

Skrifstofa Landssambands hestamannafélaga hefur flutt sig tímabundið norður á Vindheimamela í Skagafirði vegna Landsmóts.

Íslandsmót í hestaíþróttum 2011 á Selfossi

Íslandsmót í hestaíþróttum 2011 verður á Selfossi  í boði Hestamannafélagsins Sleipnis. Mótið verður haldið á Brávöllum á Selfossi dagana 13.-16. júlí nk.

Afsláttur aðeins á netinu

Miðasalan á Landsmótið á Vindheimamelum gengur mjög vel og er fólk enn að kaupa sér miða á netinu.

Gæðingaveisla á Sörlastöðum 25.-27. ágúst

Glæsilegt gæðingamót verður haldið á Sörlavöllum dagana 25.-27. ágúst næstkomandi.