04.03.2011
Folaldasýning Sörla verður haldin að Sörlastöðum á morgun, laugardaginn 5.mars og hefst hún kl.13.00. Frítt er inn á sýninguna og
kaffisala gegn vægu verði.
39 folöld eru skráð til leiks og dómarar eru Magnús Lárusson og Svanhildur Hall.
Dagskrá:
Fyrra holl (folald 1-20)
Hlé og uppboð
Seinna holl (folald 21-39)
Verðlaunaafhending
04.03.2011
Nú eru væntanlega allir að setja sig í gírinn fyrir Kvennakvöldið annað kvöld. Stelpurnar í Kvennadeildinni hafa lagt blóð, svita og
tár í að allt megi sem best til takast, enda verður enginn svikinn af því að mæta á Kvennakvöld í Fáki.
04.03.2011
Fyrirhugað er reiðnámskeið með Ásdísi Helgu Sigursteinsdóttur reiðkennara. Ásdís Helga er menntaður reiðkennari frá
Hólaskóla ásamt því að hafa náð góðum árangri bæði sem kynbóta- og keppnisknapi, heimasíða
Ásdísar Helgu er http://asdishelga.123.is/home/
04.03.2011
Skráning er hafin fyrir fimmganginn í KEA mótaröðinni sem fram fer fimmtudaginn 10. mars og er skráning á lettir@lettir.is Skráningargjaldið er 2.500 kr. fyrir hvern hest, og það þarf að leggja inná 0302-26-15841 kt: 430269-6749
(a.t.h. þetta er ekki sami reikn. og vanalega er notaður, greiða þarf skráningargjaldið fyrir hádegi á fimmtudag).
Mótið hefst kl. 19:00 og er knapafundur kl. 18:15
03.03.2011
Undirbúningur fyrir hestadaga sem haldnir verða 26.mars til 2.apríl 2011 er nú í fullum gangi. Dagská hátíðarinnar er
tilbúin og má sjá á http://www.hestadagar.is/
03.03.2011
Snæfellingur ætlar að standa fyrir reiðtúr laugardaginn 5. mars, þar að segja ef veður leyfir. Mæting kl. 12 að Stakkhamri og
farið í reiðtúr þaðan og endað aftur þar.
02.03.2011
FEIF Youth Camp verður haldð í Skotlandi árið 2011. Dagsetning: 23. – 30. júlí 2011. Verð: 530 - 550 €.
02.03.2011
Skráning á folaldasýningu Sörla sem haldin verður að Sörlastöðum næstkomandi laugardag er í fullum gangi.
02.03.2011
Hin árlega hrossaræktunarferð kynbótanefndar Fáks og Limsfélagsins verður farin laugardaginn 5.mars.n.k.
01.03.2011
Þar sem einhverjir hafa áhyggjur af ísnum þá er rétt að segja frá því að hann er afskaplega góður, sléttur og
traustur.