05.05.2010
Haldið verður æfingamót fyrir börn og unglinga í Létti sunnudaginn 9. maí.
Keppt verður í Tölt T1 og T8 – Fjórgangur V1. Leyfilegt er að mæta að hámarki með 2 hross og má skrá sig í eina
töltgrein og fjórgang (leyfilegt er að mæta með báða hestana í báðar greinarnar).
05.05.2010
Varla hefur hún farið framhjá nokkrum hestamanni sú kvefpest sem þessa dagana herjar á hrossastofninn. Ljóst er að pestin er mun alvarlegri en
í fyrstu var talið og virðist hrossum mjög hætt við að slá niður ef ekki er varlega farið, þó menn telji einkenni horfin.
04.05.2010
Því miður reyndust vera villur í þeirri útgáfu af Kappa sem gefin var út um miðjan apríl síðastliðinn. Búið er
að laga villurnar. Þeir sem hafa sótt Kappa á vef LH á undanförnum 2 vikum þurfa því að sækja hann aftur og setja hann upp að
nýju.
04.05.2010
Nú eru 4 vikur liðnar frá því tilkynning barst um smitandi hósta í hrossum, nokkuð samtímis í Skagafirði og á Suðurlandi.
Þá þegar var ljóst að veikin hafði búið um sig um nokkra hríð, 3-4 vikur hið minnsta og kannski miklu lengur.Þó ekki sé
búið að greina orsökina hefur nokkur reynsla safnast um gang veikinnar og myndin skýrist dag frá degi.
03.05.2010
Nú er verið að taka niður skráningar á kynbótasýninguna í Víðidal. Síðasti skráningardagur er í dag.
Tekið er við skráningum í síma 480-1800 en einnig er hægt að ská hross til sýningar á heimasíðu Búnaðarsambands
Suðurlands www.bssl.is. Þar er einnig að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um kynbótsýningar o.fl.
03.05.2010
Minnum á námskeið Tölvunefndar LH í dag, mánudaginn 3.maí, kl.17:00 ÍSÍ húsinu, 3.hæð. Mælt er eindregið með
því að hvert félag sendi sinn fulltrúa á námskeiðið.
03.05.2010
Mótanefnd Léttis hefur ákveðið að halda Töltmót, föstudaginn 7. maí. Mótið verður haldið á
Hlíðarholtsvelli, Lögmannshlíð og hefst mótið kl. 18:00.
30.04.2010
Smitandi hósti breiðist áfram út meðal hrossa sem haldin eru á húsi víða um land. Enn hefur ekki fundist hvað veldur en allt bendir til
að um veirusýkingu sé að ræða sem magnast upp í þétt skipuðum hesthúsum. Í kuldatíð undanfarinna vikna hefur reynst
erfitt að halda góðu lofti í húsunum án þess að slái að hrossum sem gengin eru úr hárum og má reikna með að
það hafi haft sitt að segja. Búið er að útiloka allar alvarlegustu veirusýkingarnar sem þekktar eru og leggjast á öndunarfæri hrossa
s.s. hestainflúensu, smitandi háls og lungnakvef/ fósturlát (herpes týpa 1) og Rhino-kvef. Unnið er áfram að greiningu bæði á
Tilraunastöðinni á Keldum og á Dýralækningastofnun Svíþjóðar.
30.04.2010
Íþróttamót Gusts, sem er opið World Ranking mót, mun fara fram í Glaðheimum í Kópavogi dagana 15. -16. maí nk.
Skráning fer fram dagana 6. - 10. maí á vefnum www.gustarar.is undir liðnum skráning.
29.04.2010
Samkvæmt lögum og reglum LH ber Keppnisnefnd að gefa út lágmörk fyrir Íslandsmót á hverju ári, 3 mánuðum fyrir
Íslandsmót. Tekin var ákvörðun um að setja þau einum heilum neðar en meistaraflokkslágmörk eru nú og eru lágmörkin sem
hér segir: