19.03.2009
Hólasveinnin Árni Björn Pálsson (annar í rásröð) gaf fyrsta tóninn í fimmgangskeppni KS Meistaradeildar Norðurlands í
gærkvölti. Og það var enginn feiltónn, því honum varð ekki haggað úr fyrsta sætinu út keppnina. Bjarni jónasson vann sig
upp úr B úrslitum og hafnaði að lokum í 3. sætinu eftir að hlutkesti hafði verið varpað milli hans og Stefáns Friðgeirssonar.
19.03.2009
Keppt verður í gæðingafimi í Meistaradeild VÍS í Ölfushöllinni í kvöld. Gæðingafimin er af mörgum talin ein mesta
áskorun fyrir reiðmenn í keppni á íslenskum hestum. Þar eru sameinuð gildi klassískrar reiðmennsku, og þjóðlegrar
íslenskrar reiðmennsku. Nokkrir knapar hafa riðið afar fallegar og vel útfærðar sýningar í þessari keppnisgrein.
18.03.2009
Fyrsta upprifjunarnámskeið gæðingadómara verður haldið í kvöld, miðvikudag, í Íþróttamiðstöðinni í
Laugardal. Námskeiðið hefst klukkan 18.00. Allir gæðingadómarar fengu sendan DVD disk auk annarra upplýsinga fyrir nokkru síðan og ætlast er
til að menn komi undirbúnir til leiks. Námskeiðið kostar 5000 krónur, félagsgjald er 1500. Samtals 6500 krónur.
18.03.2009
Ístölt – Þeir allra sterkustu 2009, verður haldið í Skautahöllinni í Reykjavík laugardaginn 4. apríl. Mótið er haldið
til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum. Úrval knapa og töltara mun taka þátt í keppninni. Átta
framúrskarandi stóðhestar verða sýndir.
17.03.2009
Það verða engar smá stjörnur sem munu etja kappi saman næst komandi fimmtudag í Ölfushöllinni þegar keppni í gæðingafimi
í Meistaradeild VÍS fer fram.
17.03.2009
Æskulýðsnefnd LH hefur frestað fundum sem halda átti á Akureyri um næstu helgi, og Egilsstöðum. Ristjótt tíðarfar og
þétt dagskrá í hestamannafélögunum hafa sett mark sitt á undirtektir og því hefur verið ákveðið að fresta
síðustu tveimur fundunum í fundaherferðinni um óákveðinn tíma.
17.03.2009
Á miðvikudagskvöldið er keppt í Svaðastaðahöllinni í fimmgangi og hefst keppnin kl. 20. Margir mjög athyglisverðir hestar eru
skráðir til leiks og verður spennandi að fylgjast með.
16.03.2009
Birgir Skaptason og landsliðsnefnd LH hafa tekið ákvörðun um að sameina „Ístölt“ og íshallarmótið „Þeir allra
sterkustu“. Sameinað mót fær nafnið „Ístölt – Þeir allra sterkustu“. Ágóði af mótinu mun renna til styrktar
landsliði Íslands í hestaíþróttum.
16.03.2009
Annað Landsbankamót vetrarins í Sörla verður haldið 21. mars kl.14:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Keppt er í tölti á
beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms.
16.03.2009
Fjöldi manns sótti málþingið „Út með ágrip“, sem haldið var á Hvanneyri, þrátt fyrir slæma
veðurspá, sem rættist aldrei þessu vant. Að sögn Ágústs Sigurðssonar, rektors á Hvanneyri og fundarstjóra ráðstefnunnar, var
létt yfir fundargestum, þrátt fyrir að umræðuefnið væri ekkert sérstaklega skemmtilegt.