22.06.2009
Í tengslum við Fjórðungsmót 2009 verður boðið uppá fjöruferð um Löngufjörur, föstudagskvöldið 3.
júlí.
Mæting í reiðina er föstudagskvöldið 3. júlí kl. 20:00 á Kaldármelum og kl. 21:00 á Snorrastöðum.
22.06.2009
Nú styttist óðum í Fjórðungsmót á Kaldármelum, dagana 1. – 5. júlí. Mikil stemning virðist ríkja
í hestamannafélögunum sem þátt taka og raunar langt út fyrir raðir þeirra. Hestamenn virðast ætla að fjölmenna á
Kaldármela fyrstu vikuna í júlí. Endanleg dagskrá liggur nú fyrir á heimasíðu FM: www.lhhestar.is/fm2009. Þar er einnig
að finna frekari upplýsingar fyrir þátttakendur og gesti.
22.06.2009
Mjög góð skráning hefur verið á miðnæturmót Hrings sem haldið verður
á Hringsholtsvelli þriðjudaginn 23.júní.
19.06.2009
Rétt er að vekja athygli félagsmanna á því að nú hefur öllum skuldlausum félagsmönnum Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
verið sendur tölvupóstur. Þar er að finna leiðbeiningar um hvernig þeir sækja um félagsaðgang að Worldfeng en það verða allir
að gera fyrir 1. júlí því annars lokast á þá.
19.06.2009
Landsliðsnefnd minnir á að enn eru til sölu folatollar undir nokkra af albestu stóðhestum landsins.
19.06.2009
Sunnudaginn 14.júní síðastliðinn fór fram íþróttamót Snæfellings á Kaldármelum.
18.06.2009
Ljósmyndir frá HM úrtöku09 í Víðidal eru komnar í ljósmyndasafn. Smellið á "Ýmislegt" hér fyrir ofan,
síðan á "Ljósmyndir" í hnapparöðinni til vinstri. Góða skemmtun.
18.06.2009
Úrtökumóti fyrir Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Sviss er lokið.
18.06.2009
Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi hlaut 8,13 í einkunni í tölti í seinni umferð Úrtökumóts fyrir
Heimsmeistaramótið í Sviss.
18.06.2009
Sigurður Sigurðarson á Freyði frá Hafsteinsstöðum hlaut 8,17 í einkunn í gæðingaskeiði í seinni umferð
Úrtökumóts fyrir Heimsmeistaramótið í Sviss.