29.04.2009
Síðasta mót Meistaradeildar VÍS á þessum vetri fer fram í Ölfushöllinni á morgun, fimmtudag. Fjórir knapar eiga
fræðilegan möguleika á sigri: Eyjólfur Þorsteinsson, sem nú er efstur með 9 stiga forskot, Sigurbjörn Bárðarson, sem er í
öðru sæti, og síðan þeir Hinrik Bragason og Sigurður Sigurðarson. Talið er næsta víst að slagurinn muni standa á mill þeirra
Eyjófls og Sigurbjarnar.
29.04.2009
Firmakeppni Sóta / Minningarmót Ása og Önnu fór fram síðastliðinn laugardag, kosningardaginn, í dásamlegu veðri.
Mótið hófst á stuttri hópreið um Álftanesið sem endaði á vellinum þar sem allir keppendur og fleiri til, tóku þátt
í. Eftir að formaður setti mótið og minntist þeirra hjóna hófu börnin keppnina.
29.04.2009
Hestamannafélagið Léttir mun standa fyrir sýningunni Æskan og hesturinn á Akureyri 2. maí. Þessi sýning hefur verið haldin á
Sauðárkróki undanfarin ár, en samkomulag var gert um að halda sýninguna til skiptis annað hvert ár á Sauðárkróki og Akureyri.
29.04.2009
Á morgun miðvikudaginn 29. apríl hefjast skráningar á kynbótasýninguna í Víðidal sem verður dagana 12.-15. maí. Tekið
verður við skráningum í síma 480-1800, einnig er hægt að skrá á hross til sýningar á heimasíðu
Búnaðarsambandsins www.bssl.is. Síðasti skráningardagur er 4. maí.
28.04.2009
Það er þétt dagskrá hjá Fáksmönnum næstu daga og vikur. Þar ber hæst Stórsýningu Fáks í
Reiðhöllinni í Víðidal. En fleira skemmtilegt er í vændum, svo sem Hlégarðsreiðin, og svo gæðingamótið sem margir
bíða spenntir eftir.
28.04.2009
Forsalan fer fram í hestavöruverslununum Baldvini og Þorvaldi á Selfossi, Líflandi í Reykjavík og Top Reiter í Reykjavík. Húsið
tekur um 550 manns, en vegna ársmiða verða einungis 350 miðar seldir. Því er um að gera að tryggja sér aðgöngumiða í tíma
því gera má ráð fyrir að það verði uppselt á þetta mót eins og var með fjórgangs- og fimmgangsmótin. Verð
á aðgöngumiðanum er 1.500 krónur fyrir 13 ára og eldri og 500 krónur fyrir 12 ára og yngri.
28.04.2009
„Markmiðið með þessari útfærslu á töltkeppninni er að gera meiri kröfur til reiðmannsins. Eins og keppnin er riðin í dag,
þá liggur mér við að segja að þú getir keypt hest í gær, unnið keppni á honum í dag, og síðan eyðilagt hann
á morgun,“ segir Reynir Aðalsteinsson, reiðkennari á Hvanneyri.
28.04.2009
Nú styttist í Stórsýningu hestamanna í Víðidal. Þessi eftirsótta sýning verður haldin 2. maí næstkomandi í
reiðhöllinni í Víðidal. Hestakostur sýningarinnar er hreint frábær, svo dæmi séu nefnd þá mætir Þristur frá
Feti hinn eini sanni með afkvæmum, afkvæmi Pyttlu frá Flekkudal munu dansa um gólfið, Mette Mannseth mætir með atriði sem aldrei hefur sést
hér áður og Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sá mikli gæðingur, munu sýna listir sínar eins og þeim
einum er lagið.
28.04.2009
Fimm náðu prófi á alþjóðlegu FEIF-réttinda námskeiði fyrir kynbótadómara sem haldið var á Hólaskóla
fyrir skömmu. Tíu tóku þátt í námskeiðinu, þar af fjórir íslenskir ríkisborgarar. Allir íslensku nemendurnir
stóðust prófið og einn frá Danmörku.
28.04.2009
Firmakeppni Gusts fór fram á reiðvellinum í Glaðheimum um helgina. Firmakeppnin er einn af stærstu viðburðum ársins í félaginu og er
þátttaka ávallt mjög góð og mikill metnaður lagður í keppnina. Keppt er um veglega farandgripi, auk þess sem glæsilegasta parið er
útnefnt af dómurum. Dagurinn hefst á fánareið og svo er tekið til við keppni í öllum flokkum. Að venju tók fjöldi fólks
þátt og hestakostur gríðargóður í spennandi keppni.