12.05.2009
Dagana 8. og 9. maí fór fram hestaíþróttamót UMSS á Hólum. Þrátt fyrir að fresta þyrfti mótinu um dag vegna
veðurs fór það í heild sinni vel fram og þátttaka var góð. Nemendur á þriðja ári hestafræðideildar í
Þjálfun og reiðkennslu tóku þátt með sína nemendahesta og skeiðhesta og stóðu sig með prýði.
Þátttaka þeirra á þessu móti er hluti af námi þeirra við skólann og var hún örugglega í senn bæði
þroskandi og lærdómsrík fyrir nemendur og hesta þeirra. Úrslit og myndir frá mótinu má sjár HÉR.
12.05.2009
Hestamannafélagið Snæfellingur heldur úrtöku vegna Fjórðungsmóts á Kaldármelum sem jafnframt verður félagsmót
hestamannafélagsins. Snæfellingur á rétt á að senda 4 hesta til keppni á Fjórðungsmóti í hverjum flokki.
11.05.2009
Oft var þörf en nú er nauðsyn að styrkja landsliðið okkar sem fer til Sviss í sumar og ætlar að fylgja eftir góðum árangri
Íslands undanfarin mót. Landsliðnefnd LH hefur fengið að gjöf folatolla undir vinsælustu hesta landsins og hafa stóðhesteigendur lagt sitt að
mörkum til fjáröflunar fyrir landsliðið.
11.05.2009
Gæðingamóti Fáks var haldið í Víðidal um helgina. Gæðingurinn Stakkur frá Halldórsstöðum varð efstur í A
flokki, knapi Sigurbjörn Bárðarson. Sigurbjörn varð einni efstur í tölti Meistara á Jarli frá Mið-Fossum.
11.05.2009
Miðvikudaginn 13. maí verða fyrstu Skeiðleikar af fjórum sem Skeiðfélagið og stendur fyrir í ár. Verða þeir haldnir að
Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði.
08.05.2009
Það var ekki troðfullt út úr dyrum á fundum LH um framtíð LH og Landsmóta sem haldnir voru nú í vikunni. Um fimmtán manns
mættu á hvorn fund. Báðir fundirnir voru hins vegar mjög ganglegir og þar fór fram frjó umræða um þessi mikilvægu
málefni.
08.05.2009
Stjórn LH samþykkti á stjórnarfundi 20. mars síðastliðinn að hefja nýskráningu Íslandsmeta í kappreiðum. Breytingin tekur
gildi frá og með síðustu áramótum, 2008/2009. Skilyrði fyrir staðfesingu á meti er að viðurkenndur rafrænn búnaður hafi
verið notaður þegar metið var sett og ræst út úr básum á kappreiðum þar sem farið er í öllu eftir núgildandi
lögum og reglum LH.
08.05.2009
Á Landsþingi LH 2008 voru samþykktar nokkrar breytingar á keppnisreglum sem heyra undir Lög og reglur LH. Keppnisnefnd hefur tekið helstu breytingarnar saman til
glöggvunar.
07.05.2009
Minnum á opinn fund um málefni LH og Landsmóts sem haldinn verður í Rangárhöllinni í kvöld, fimmtudag, klukkan 20-22. Til fundarins eru
boðuð hestamannafélögin á svæðinu austan Hellisheiðar að Lómagnúpi.
07.05.2009
Leiðari fyrir gæðingadómara er nú kominn á netið, ásamt sérstökum leiðara fyrir úrslitakeppni. Einnig hefur listi yfir virka
gæðingadómara verið uppfærður. Finna má umrætt efni undir hnappnum Keppnismál hér að ofan.