01.02.2012
Húnvetnska liðakeppnin er að fara í gang og verður fyrsta mótið haldið þann 17. febrúar og er það keppni í
fjórgangi.
31.01.2012
Haldin verða tvö upprifjunarnámskeið fyrir hestaíþróttadómara í ár.
30.01.2012
Aðalfundur HÍDÍ var haldinn þann 23.janúar s.l.
í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Alls mættu 31 félagsmaður,
fundarstjóri var Sigurbjörn Bárðarson.
30.01.2012
Aðalfundur Kvennadeildar Gusts verður haldinn miðvikudaginn 8.febr. 2012
kl. 20 í veitingasal Gusts í Glaðheimum.
30.01.2012
Uppskeruhátíð barna og unglinga í Fáki verður haldin n.k. miðvikudagskvöld kl. 18:00
(1. febrúar). Margt skemmtilegt verður gert, skemmtikraftur kemur í heimsókn, verðlaunaveitingar, pizza og gos í boði Fáks, leikir ofl.
26.01.2012
Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á
stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars – 1. apríl næstkomandi.
26.01.2012
Fyrirhugað er námskeið með Ísólfi Líndal Þórissyni reiðkennara helgina 4-5 febrúar á nýja Gustsvæðinu í
reiðhöllinni að Hamraenda 16-18. Hver þátttakandi fær einkatíma á laugardag en 2 tíma á sunnudag þar sem kennt verður í
paratímum.
26.01.2012
Stjórn Meistaradeildar í hestaíþróttum hefur í samráði við liðseigendur og liðsstjóra tekið þá
ákvörðun að fresta mótinu í kvöld vegna mikllar ófærðar og slæms veðurs.
26.01.2012
FT-Norður stendur fyrir sýnikennslu í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki nk. laugardagskvöld, 28. janúar kl. 20.
Þar munu Jóhann Skúlason og Iben Andersen fræða áhugasama hestamenn um tamningar og þjálfun.
25.01.2012
Fyrirlesturinn sem átti að vera í Fáki í kvöld með Ingimari Sveinssyni, frestast til 9. febrúar.