04.01.2012
Í vetur ætla æskulýðsnefndir Gusts og Andvara að starfa saman, verkefni nefndarinnar eru æskulýðsstarf og námskeiðahald fyrir börn
og unglinga.
03.01.2012
Guðmar Þór Pétursson reiðkennari verður með sýnikennslu fimmtudaginn 5. jan í nýja Gusti í reiðhöllinni Hamraenda 16-18 ath
enginn aðgangseyrir.
03.01.2012
Limsfélagið og hrossaræktardeild Fáks hefur vetrarstarfið 2012 af fullum krafti með árlegri hrossakjötsveislu í félgsheimili Fáks
Laugardagskvöldið 7 janúar n.k.
31.12.2011
Landssamband hestamannafélaga óskar landsmönnum öllum árs og friðar. Um leið vill LH hvetja alla hestamenn um allt
land að huga vel að hrossum sínum nú þegar nýtt ár gengur í garð með tilheyrandi ljósagangi og sprengingum.
Kveðja
Stjórn og starfsfólk LH
30.12.2011
Fimmtudaginn 5. janúar verður fræðslufyrirlestur í Funaborg með Jóhanni Friðgeirssyni reiðkennara. Jóhann hefur áratuga reynslu af
reiðkennslu, ræktun, tamningum og sýningum bæði hér heima og erlendis.
29.12.2011
Hygla þarf útigangshrossum - Bændur og aðrir umráðamenn útigangshrossa eru beðnir að huga vel að hrossunum nú þegar víða
eru jarðbönn.
28.12.2011
Á nýju ári mun lyklakerfi verða tekið í notkun á Reiðhöllinni í Víðidal þannig
að þeir sem ætla að nota reiðhöllina í vetur munu þurfa að opna innkomuhurðina með lykli (samskonar "flögu" og hefur hangið við
dyrnar).
23.12.2011
Nú hefur verið dregið í jólaleik Landsmóts en leikurinn hefur verið í gangi síðan í byrjun nóvember. Allir þeir sem
keyptu miða í gegnum miðasöluvef Landsmóts fram til dagsins í dag voru með í pottinum.
Glæsilegir vinningar voru í boði og leið okkur sannarlega eins og jólasveinum þegar við tókum til við að draga. Til að gæta fulls
hlutleysis, fengum við kollega okkar hjá Handknattleikssambandi Íslands til að draga númer þeirra heppnu uppúr Casco hjálminum! Þetta voru
þau Einar Þorvarðarson, Róbert Geir Gíslason og Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir
22.12.2011
Stjórn Funa gerir alvarlega athugasemd við vinnubrögð stjórnar LH við úthlutun landsmótanna 2014 og 2016. Á sama tíma og umsókn
hestamannafélagsins Funa um Landsmót 2016 er talin veik þá er ákveðið að mótið skuli haldið á Vindheimamelum þrátt
fyrir að formleg umsókn liggi ekki inni frá staðarhöldurum þar.
22.12.2011
Hestamannafélagið Funi í Eyjafirði gagnrýnir harðlega ákvörðun stjórnar LH um að velja landsmóti stað á
Gaddstaðaflötum 2014 og Vindheimamelum 2016.