24.03.2011
Hestamannafélagið Máni heldur opið íþróttamót dagana 15.-17. apríl nk. Mótið er World Ranking mót og verður keppt
í öllum helstu greinum hestaíþrótta ef næg þátttaka fæst.
24.03.2011
Öllum hestamönnum stendur nú til boða að fá N1 kortið með sérkjörum og um leið geta viðkomandi aðilar valið sitt
hestamannafélag til þess að styrkja. Hálf króna af hverjum seldum lítra rennur þá sem fjáröflun til viðkomandi félags.
23.03.2011
Nú fer að líða að því að Hestadagar í Reykjavík fari að hefjast. Um helgina verður nóg um að vera. Laugardaginn
næskomandi mun reiðskólinn Íslenski hesturinn sjá um hestateymingar á Ingólfstorgi milli 14 og 15, Orrasýning í
Ölfushöllinni, og á sunnudaginn er KvennaLífstölt hjá hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ og allur ágóði af
mótinu mun renna til Lífs (kvennadeild Landsspítlans).
Hér að neðan má sjá dagskrá Hestadaga í Reykjavík , einnig má finna allar upplýsinga um viðburðina og kaupa miða
í ferðirnar og sýningar á heimasíðu hestadaga sem er www.hestadagar.is eða í síma
514-4030.
23.03.2011
Stóðhestaveisla Rangárhallarinnar tókst frábærlega. Frábær hestakostur var sýndur og góð stemmning var í höllinni.
22.03.2011
Námskeið í byggingadómum kynbótahrossa á sunnudaginn. Markmið með námskeiðinu er að bjóða upp á ítarlega
fræðslu um byggingu hrossa og hvaða atriði er verið að meta þegar hver eiginleiki byggingar er dæmdur.
22.03.2011
Haraldur Þórarinsson formaður LH/LM og Bergþór Karlsson framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar skrifuðu undir samning um samstarf sín
á milli á dögunum.
22.03.2011
Hestamannafélagið Léttir og Eir félag nemenda á Heilbrigðisvísindasviði, bjóða öllum Akureyringum í heimsókn í Top
Reiter höllina í Lögmannshlíð, föstudaginn 25. mars kl. 19:30.
22.03.2011
Drottningar og kóngar mæta í Ölfushöllina þann 26. mars. Má þar meðal annara nefna:
22.03.2011
Skráning er hafin fyrir slaktaumatölt og skeið í KEA mótaröðinni sem fram fer fimmtudaginn 24. mars og er skráning á lettir@lettir.is.
22.03.2011
Ákveðið hefur verið að halda nýdómara og landsdómaranámskeið í Gæðingadómum,ef næg
þáttaka fæst,lágmark 14 manns þurfa að skrá sig á námskeiðið.