09.03.2010
Fjölskyldusýningin Æskan & hesturinn verður haldin í Reiðhöllinni í Víðidal um helgina, 13. og 14. mars. Tvær sýningar
verða hvorn daginn, kl. 13:00 og kl. 16:00.
09.03.2010
Kæri íþróttadómari! Vegna fjölda áskorana hefur stjórn HÍDÍ ákveðið að halda enn eitt
samræmingarnámskeið mánudaginn 15.mars nk. kl. 17.00 stundvíslega í Íþróttamiðstöðinn í Laugardal. Vinsamlegast
staðfestið þátttöku: pjetur@pon.is
08.03.2010
Í kvöld verður fundur í félagsheimili Fáks um málefni hrossaræktarinnar og hefst fundurinn kl. 20:30
Frummælendur verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, Sigrún Ólafsdóttir formaður
Félags tamningamanna og fulltrúi í fagráði í hrossarækt og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka
Íslands. Kynnt verða m.a. nýjar vægistölur í kynbótadómum og margt fleira fróðlegt.
Nauðsynlegt er fyir þá sem hafa gaman af hrossarækt að fjölmenna og heyra í forystumönnum okkar hvað er að gerast og einnig að hafa
áhrif á stefnumótun í hrossaræktarmálefnum.
Fjölmennum.
*Reiðhöllin: Þar sem sýningin Æskan og hesturinn er um helgina verður Reiðhöllin lokuð töluvert í vikunni vegna æfinga.
Þriðjudaginn 9. mars er höllin lokuð frá kl. 15:00 - 22:00
Miðvikudaginn 10. mars er höllin lokuð frá 18:00 - 22:00
Fimmtudaginn 11. mars er höllin lokuð frá kl. 18:00 - 22:00
Föstudaginn 12. Mars er höllin lokuð frá kl. 20:00 - 21:00
Laugardag og sunnudag er höllin svo lokuð en þá er sýningin Æskan og hesturinn sem allir ættu að koma á.
*Það verður ekki reiðkennari þá á miðvikudagskvöldið vegna æfinga fyrir æskan og hesturinn. Minnum á almennar umferðarreglur
í Reiðhöllinni og taka tillit til annara sem eru að þjálfa.
*Næsta Bikarmót verður á föstudagskvöldið í reiðhöllinni hjá Mánamönnum í Keflavik. Keppt verður í Smala,
brokki og skeiði. Skemmtilegt mót sem gaman er að fara á .
*Reiðtúr verður nk. laugardag. Mæting við Reiðhöllina kl.14:00
08.03.2010
Vegna fréttatilkynningar frá Stíganda,Léttfeta, Geysi og Sindra
vill undirritaður koma eftirfarandi á framfæri. Að morgni fimmtudagsins 4. mars hafði formaður Stíganda í Skagafirði samband við skrifstofu LH
og bað um fund með stjórn LH fyrir félögin í Skagafirði.
08.03.2010
Ístöltsmót kvenna, "Svellkaldar konur" fer fram í Skautahöllinni í Laugardal á laugardaginn kemur 13. mars og hefst mótið kl. 17. Alger
sprengja varð í skráningu á mótið og stefnir í hörkukeppni í öllum flokkum. Sigurvegari opna flokksins í fyrra, Lena Zielinski mun
freista þess að verja titil sinn, en fær án efa hörkukeppni því flestar bestu reiðkonur landsins eru skráðar til leiks.
08.03.2010
HÍDÍ hefur haldið tvö samræmingarnámskeið á undanförnum dögum. Ýmsar breytingar
voru kynntar dómurum um áherslur í dómstörfum og túlkunaratriði á reglum sem notaðar
hafa verið. Dómurum finnst áríðandi að þessar ábendingar skili sér til allra keppenda.
Hjálagt fylgja helstu breytingarnar – en keppendur eru hvattir til að prenta út Leiðaran
af heimasíðu LH www.lhhestar.is undir keppnismál – íþróttadómarar og kynna sér hann.
05.03.2010
Hestamannafélagið Fákur og Landssamband hestamannafélaga undirrituðu í dag samstarfssamning um að Landsmót hestamanna árið 2012 verði
haldið á félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík.
Landsmót eru haldin á tveggja ára fresti og verður landsmót haldið í Reykjavík dagana 24. júni til 1. júlí 2012 á
90 ára afmæli Hestamannafélagsins Fáks.
05.03.2010
Endurmenntun LbhÍ stendur fyrir námskeiði laugardaginn 13. mars um hesthúsbygginar - Hross í hollri vist!
Hvetjum alla sem standa í slíku, nýbyggingum eða lagfæringum, að skrá sig sem fyrst.
05.03.2010
Gæðingadómarafélag LH minnir á upprifjunarnámskeiðið sem haldið verður þriðjudaginn 9.mars
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst stundvíslega kl.17:00. Seinna upprifjunarnámskeiðið verður haldið á Hólum
í Hjaltadal þriðjudaginn 30.mars kl.17:00. Kostnaður vegna upprifjunarnámskeiðsins og árgjald félagsins er samtals 8.000kr.
04.03.2010
Í framhaldi af frábærum fyrirlestri sem haldinn var í gærkvöldi, mun Sigurbjörn Bárðason vera með sýnikennslu á nokkrum
hestum Sörlamanna og einnig sýna sinn eigin keppnishest, hvernig hann byggir hann upp.