02.09.2009
Meistaramót Andvara fer fram á Kjóavöllum dagana 4.-6.sept. Gríðarleg skráning er á mótið. Um 100 hestar eru skráðir í
B-flokk og tæplega 70 hestar í A-flokk. Tölt 1.flokkur eru um 40 hestar skráðir og í tölti 2.flokki eru um 30 hestar skráðir.
26.08.2009
Síðasta grein Skeiðleika Skeiðfélagsins í ár var 100m skeið. Það var Árni Björn Pálsson á Ás frá Hvoli
sem sigraði á tímanum 7,69.
26.08.2009
Keppni er lokið í 150m skeiði á Skeiðleikum Skeiðfélagsins. Það var Sigurbjörn Bárðarson á Óðni frá
Búðardag sem sigraði á tímanum 14,81.
26.08.2009
Þá er keppni lokið í 250m skeiði á fjórðu og síðustu Skeiðleikum Skeiðfélagsins í ár. Það var
Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal sem bar sigur úr býtum á tímanum 23,51.
26.08.2009
Hætt er að rigna á Selfossi og brautin óðum að þorna, því hefur verið ákveðið að Skeiðleikarnir fara fram í
kvöld eins og til stóð. Keppni hefst klukkan 19:00 á 250m skeiði, síðan verður keppt í 150m skeiði og að lokum í 100m skeiði.
Meðfylgjandi eru ráslistar kvöldsins.
25.08.2009
Glæsilegu Stórmóti hestamanna á Melgerðismelum lauk nú um helgina. Meðfylgjandi eru úrslit frá mótinu.
Þau Auðbjörn Kristinsson og Ester Anna Eiríksdóttir, Hólakoti, gáfu farandbikar í 250 skeiði til minningar um Neista frá
Kotá.
24.08.2009
Nú gefst öllu áhugafólki um hestamennsku tækifæri til að sitja örnámskeið hjá hinum heimsfræða reiðkennara Susan Harris
frá Cortland í New York fylki. Susan býr yfir gífurlegri reynslu sem enginn sannur áhugamaður um reiðmennsku ætti að láta fram hjá
sér fara.
21.08.2009
Ljósmyndir frá Heimsmeistaramóti íslenska hestsins 2009 sem haldið var í Sviss er nú að finna á heimsíðunni undir Ýmsilegt -
Ljósmyndir. Myndirnar tók Maríanna Gunnarsdóttir. Góða skemmtun.
20.08.2009
Opið stórmót hestamanna fer fram nú um helgina og er dagskrá eftirfarandi:
19.08.2009
Hestamannafélagið Sörli heldur Íslandsmót fullorðinna á Sörlastöðum í Hafnarfirði.